Man Utd og Chelsea hafa áhuga á Adeyemi - Real Madrid horfir til Gvardiol - Liverpool vill Dumfries
   þri 19. maí 2026 14:30
Elvar Geir Magnússon
Onana æfir í Istanbúl
Amadou Onana.
Amadou Onana.
Mynd: EPA
Aston Villa mætir Freiburg frá Þýskalandi í úrslitaleik Evrópudeildarinnar annað kvöld en leikurinn fer fram í Istanbúl.

Unai Emery, stjóri Aston Villa, hefur unnið Evrópudeildartitilinn fjórum sinnum. Oftast allra stjóra. Þrjá sem stjóri Sevilla og einn sem stjóri Villarreal.

Villa vann síðast titil fyrir 30 árum, þegar liðið vann deildabikarinn 1996, og mikil spenna meðal stuðningsmanna liðsins.

Belgíski miðjumaðurinn Amadou Onana hefur misst af síðustu fimm leikjum Villa vegna meiðsla en gæti spilað á morgun.

Emery segir Onana hafa æft í gær og muni æfa aftur í dag. Ákörðun um stöðuna á honum muni þó bíða til morguns.

„Við erum komnir með góða reynslu í Evrópuleikjum og leikmenn eiga skilið að vera komnir alla leið hingað. Ég er ekki kóngur Evrópudeildarinnar hjá Aston Villa og það er kominn tími til að skrifa nýja sögu," sagði Emery á fréttamannafundi í dag.
Slapp
banner
banner
banner