Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
banner
   sun 12. apríl 2026 16:30
Ívan Guðjón Baldursson
Aleksandar Linta: Eigum séns gegn Val
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aleksandar Linta nýr þjálfari ÍBV svaraði spurningum frá Tryggva Guðmundssyni eftir 1-1 jafntefli á heimavelli gegn FH í fyrstu umferð nýs deildartímabils í Bestu deildinni.

Lestu um leikinn: ÍBV 1 -  1 FH

Eyjamenn voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og leiddu 1-0 en FH-ingar fengu bestu færin í síðari hálfleik. Hafnfirðingar jöfnuðu metin og komust nálægt því að gera sigurmark á lokamínútunum.

„Ég er sammála að þetta var leikur tveggja hálfleika. Ég er mjög ánægður með hvernig við spiluðum fyrri hálfleikinn, þetta var nákvæmlega það sem ég vildi sjá en fótboltaleikur er 90 mínútur. Markmiðið okkar er að spila svona vel í lengri tíma heldur en bara fyrstu 45 mínúturnar," sagði Aleksandar. „Ég er ekki sáttur með seinni hálfleikinn, við töpuðum alltof mörgum boltum og gáfum þeim mörg tækifæri til að sækja hratt á okkur. Við virkuðum stressaðir og hræddir við að spila boltanum fram á við. Við áttum að gera betur.

„Við byggjum á því góða sem við gerðum í fyrri hálfleik og reynum að laga það slæma sem við sáum í seinni hálfleiknum."


Aleksandar er ánægður með framlag sinna leikmanna og er spenntur fyrir erfiðum leik í næstu umferð, á útivelli gegn stórveldi Vals.

„Ef við endurtökum frammistöðuna úr fyrri hálfleiknum í dag þá eigum við séns gegn Val. Við verðum að nýta færin betur og verjast betur, við fengum klaufalegt mark á okkur í dag."
Slapp
banner
banner
banner