Þýska félagið Union Berlín hefur ráðið Marie-Louise Eta sem bráðabirgðaþjálfara karlaliðsins út þetta tímabil. Eta fer í annað sinn í sögubækur deildarinnar.
Union lét Steffen Baumgart taka poka sinn í gær eftir 3-1 tapið gegn botnliði Heidenheim.
Liðið er aðeins sjö stigum frá fallsvæðinu og ákvað að taka í gikkinn og leysa Baumgart undan störfum.
Það leitar í annað sinn til Louise-Eta en hún skráði sig á spjöld sögunnar tímabilið 2023-2024 þegar hún var ráðin aðstoðarþjálfari karlaliðsins. Það tímabilið stýrði hún einum leik af hliðarlínunni er Nenad Bjelica tók út leikbann.
Í þetta sinn er afrekið enn stærra því hún hefur verið ráðin aðalþjálfari liðsins út tímabilið. Í raun er þetta risastórt afrek því hún er líka fyrsta konan í topp fimm deildum í Evrópu til þess að vera ráðin aðalþjálfari.
Corinne Diacre þjálfaði Clermont Foot í B-deildinni í Frakklandi, Sabrina Wittmann er þjálfari Ingolstadt í C-deildinni í Þýskalandi og þá þjálfaði Hannah Dingley lið Forest Green Rovers í ensku neðri deildunum árið 2023.
„Það er ekki enn öruggt að Union haldi sæti sínu í deildinni, svona miðað við stigamuninn í neðri hlutanum, en ég er samt hæstánægð að félagið hefur treysta mér fyrir krefjandi verkefni eins og þessu. Einn af styrkleikum Union hefur verið að standa saman í gegnum svona stöður og ég er sannfærð um að við munum ná í mikilvæg stig með þessu liði,“ sagði Eta á heimasíðu Union.
Eins og áður kom fram mun hún stýra liðinu út tímabilið áður en hún tekur við sem aðalþjálfari kvennaliðsins en það mun leika í efstu deild á næsta ári. Hún hefur undanfarið starfað sem þjálfari U19 ára liðs karla hjá Union.
+++ Neue Kraft für den Endspurt: Marie-Louise #Eta übernimmt +++
— 1. FC Union Berlin (@fcunion) April 11, 2026
Die Profimannschaft der Männer wird die Schlussphase der Saison und den Kampf um den Klassenerhalt unter der Leitung von Marie-Louise Eta angehen, bisherige Trainerin der U19-Junioren und künftige Cheftrainerin der… pic.twitter.com/5w84jM4kyu



