Atlético Madrid eru að reynast afar erfiðir andstæðingar fyrir Barcelona á leiktíðinni. Atlético sló Spánarmeistarana úr leik í undanúrslitum bikarsins og er aðeins 90 mínútum frá því að slá Börsunga einnig úr leik í Meistaradeildinni.
Í báðum tilfellum náði Atlético frábærri forystu í fyrri leik liðanna.
Atlético vann 0-2 á Nývangi í síðustu viku og fer því inn í heimaleikinn í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar með tveggja marka forystu.
Leikmenn Barcelona hafa trú á endurkomu á útivelli þrátt fyrir erfiða stöðu. Þeir höfðu einnig trú á endurkomu eftir 4-0 tap í spænska bikarnum í vetur og komust nálægt því að snúa stöðunni við. 3-0 sigur í heimaleiknum dugði þó ekki til, svo Atlético tryggði sér sæti í úrslitaleiknum með samanlögðum 4-3 sigri.
„Þetta einvígi er langt frá því að vera búið, við munum leggja allt í sölurnar í næstu viku," sagði táningurinn öflugi Lamine Yamal.
Pau Cubarsí var skúrkurinn í tapi Barcelona á heimavelli. Hann fékk að líta beint rautt spjald fyrir að brjóta af sér sem aftasti varnarmaður og skoraði Julián Alvarez glæsimark beint úr aukaspyrnunni sem skapaðist. Þetta reyndist því tvöföld refsing.
„Eitt atvik breytti þessum leik. Þetta er sárt en svona er fótboltinn. Ég tek ábyrgð á mínum mistökum. Þetta er samt ekki búið, útileikurinn er ennþá eftir. Hópurinn hefur aldrei verið jafn samheldinn og hann er núna. Við erum fjölskylda og við munum aldrei gefast upp."
Hansi Flick þjálfari og Jules Koundé tóku undir þessi ummæli. Börsungar unnu svo sannfærandi sigur í nágrannaslagnum gegn Espanyol um helgina og eru fullir sjálfstrausts fyrir leikinn í Madríd sem fer fram á þriðjudagskvöldið.
09.04.2026 19:49
Barcelona sendir opinbera kvörtun til UEFA




