Chelsea 0 - 3 Manchester City
0-1 Nico OReilly ('51 )
0-2 Marc Guehi ('57 )
0-3 Jeremy Doku ('68 )
0-1 Nico OReilly ('51 )
0-2 Marc Guehi ('57 )
0-3 Jeremy Doku ('68 )
Manchester City er núna sex stigum frá Arsenal eftir sigur gegn Chelsea á Stamford Bridge í dag.
Það sem meira er, þá eiga City og Arsenal eftir að mætast innbyrðis um næstu helgi og þá á City leik til góða. Ef City vinnur restina af leikjum sínum, þá enda liðin með jafnmörg stig en Arsenal er með örlítið betri markatölu á þessum tímapunkti.
City fór hægt af stað í dag og var Chelsea hættulegri aðilinn í fyrri hálfleiknum. Marc Cucurella skoraði meðal annars mark sem var dæmt af vegna rangstöðu.
En það mætti annað City lið til leiks í seinni hálfleik og voru þeir búnir að ganga frá leiknum um miðbik hans. Varnarmennirnir Nico OReilly og Marc Guehi komu City á bragðið og Chelsea liðið brotið. Jeremy Doku batt svo lokahnútinn á þennan sigur.
Það er svo sannarlega spennandi lokasprettur framundan eftir tap Arsenal gegn Bournemouth í gær og sigur City í dag, og verða allra augu á leik þessara liða um næstu helgi. Chelsea hefur tapað þremur af síðustu fjórum leikjum sínum og er í sjötta sætinu.

