Rauðu djöflarnir ætla að sannfæra Anderson á HM - Arsenal og Man City berjast um Mingueza - Real Madrid vill Schlotterbeck
   sun 12. apríl 2026 15:36
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Parma stöðvaði sigurgöngu Napoli - Að kasta inn handklæðinu?
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Parma 1 - 1 Napoli
1-0 Gabriel Strefezza ('1 )
1-1 Scott McTominay ('60 )

Brasilíski miðvörðurinn Juan Jesus gerðist sekur um heimskuleg mistök strax í byrjun á mikilvægum leik Napoli á útivelli gegn Parma.

Ítalíumeistarar Napoli höfðu sigrað fimm leiki í röð fyrir leikinn gegn Parma en lentu undir strax á fyrstu mínútu í dag, eftir að Jesus skildi samlanda sinn Gabriel Strefezza einan eftir og tapaði mikilvægi skallaeinvígi. Strefezza slapp í gegn og skoraði.

Heimamenn í liði Parma vörðust vel og börðust af miklum krafti gegn Napoli og var staðan 1-0 í hálfleik.

Meistararnir skiptu um gír í seinni hálfleiknum og náðu að jafna metin þegar fyrrum Man Utd leikmennirnir Rasmus Höjlund og Scott McTominay tengdu saman. Höjlund lagði boltann þægilega fyrir McTominay sem lét vaða með góðu skoti af vítateigslínunni.

Napoli fékk færi til að sigra leikinn en tókst ekki að skora, svo lokatölur urðu 1-1. Þetta er mikill skellur fyrir Napoli í titilbaráttunni, þar sem liðið er sex stigum á eftir toppliði Inter sem stendur.

Inter á leik til góða á erfiðum útivelli í Como í kvöld og getur aukið forystuna í níu stig með sigri þar, þegar aðeins sex umferðir eru eftir óspilaðar.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
banner
banner