Titilbaráttulið AC Milan tapaði óvænt fyrir Udinese, 3-0, í Seríu A á Ítalíu í dag. Juventus vann annan leikinn í röð með því að merja 1-0 sigur á Atalanta í Bergamó.
Það er alveg óhætt að segja að Milan hafi endanlega stimplað sig úr titilbaráttunni með frammistöðunni í dag.
Milan lenti undir og má skrá óheppni á það þegar Davide Bartesaghi fékk boltann í sig og í netið.
Milan átti næstu færi og voru nálægt í tvígang að jafna metin áður en Udinese tvöfaldaði forystuna. Jurgen Ekkelenkamp skallaði fyrirgjöf Nicolo Zaniolo í netið.
Mílanó-menn fengu alveg sín færi en nýttu illa og þá átti Maduka Okoye vörslu í heimsklassa í síðari hálfleiknum. Tuttugu mínútum fyrir leikslok gerði Arthur Atta þriðja markið og drap það í þeim litla neista sem var eftir hjá Milan.
Milan er í 3. sæti með 63 stig, níu stigum frá toppliði Inter og nú svo gott sem búið að skrá sig úr titilbaráttunni en Udinese er í 10. sæti með 43 stig.
Juventus lagði Atalanta að velli, 1-0, í Bergamó. Heimamenn voru sterkari aðilinn framan af en það er ekki spurt að því. Mörkin telja og skoraði Jeremie Boga, vængmaður Juventus, eina markið í byrjun síðari hálfleiks.
Fílabeinsstrendingurinn kom til Juventus á láni frá Nice í janúarglugganum og átt risaþátt í góðu gengi liðsins síðustu vikurnar en hann var að gera fjórða mark sitt fyrir félagið.
Juventus er í 4. sæti með 60 stig og komið upp fyrir Como í Meistaradeildarbaráttunni en Atalanta í 7. sæti með 53 stig.
Kristófer Jónsson var í byrjunarliði Triestina sem vann 2-0 sigur á Giana Erminio í A-riðli C-deildar. Triestina er fallið en verið að gera góða hluti undanfarnar vikur og ekki tapað í fjórum leikjum í röð.
Bjarki Steinn Bjarkason var ónotaður varamaður hjá Venezia sem gerði 1-1 jafntefli við Entella í B-deildinni. Venezia er á toppnum með 72 stig og stefnir hraðbyr aftur í A-deildina.
Úrslit og markaskorarar:
Cagliari 1 - 0 Cremonese
1-0 Sebastiano Esposito ('63 )
Torino 2 - 1 Verona
1-0 Giovanni Simeone ('6 )
1-1 Kieron Bowie ('38 )
2-1 Cesare Casadei ('50 )
Milan 0 - 3 Udinese
0-1 Davide Bartesaghi ('27 , sjálfsmark)
0-2 Jurgen Ekkelenkamp ('37 )
0-3 Arthur Atta ('71 )
Atalanta 0 - 1 Juventus
0-1 Jeremie Boga ('48 )
Stöðutaflan
Ítalía
Serie A - karlar
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | Inter | 38 | 27 | 6 | 5 | 89 | 35 | +54 | 87 |
| 2 | Napoli | 38 | 23 | 7 | 8 | 58 | 36 | +22 | 76 |
| 3 | Roma | 38 | 23 | 4 | 11 | 59 | 31 | +28 | 73 |
| 4 | Como | 38 | 20 | 11 | 7 | 65 | 29 | +36 | 71 |
| 5 | Milan | 38 | 20 | 10 | 8 | 53 | 35 | +18 | 70 |
| 6 | Juventus | 38 | 19 | 12 | 7 | 61 | 34 | +27 | 69 |
| 7 | Atalanta | 38 | 15 | 14 | 9 | 51 | 36 | +15 | 59 |
| 8 | Bologna | 38 | 16 | 8 | 14 | 49 | 46 | +3 | 56 |
| 9 | Lazio | 38 | 14 | 12 | 12 | 41 | 40 | +1 | 54 |
| 10 | Udinese | 38 | 14 | 8 | 16 | 45 | 48 | -3 | 50 |
| 11 | Sassuolo | 38 | 14 | 7 | 17 | 46 | 50 | -4 | 49 |
| 12 | Parma | 38 | 11 | 12 | 15 | 28 | 46 | -18 | 45 |
| 13 | Torino | 38 | 12 | 9 | 17 | 44 | 63 | -19 | 45 |
| 14 | Cagliari | 38 | 11 | 10 | 17 | 40 | 53 | -13 | 43 |
| 15 | Fiorentina | 38 | 9 | 15 | 14 | 41 | 50 | -9 | 42 |
| 16 | Genoa | 38 | 10 | 11 | 17 | 41 | 51 | -10 | 41 |
| 17 | Lecce | 38 | 10 | 8 | 20 | 28 | 50 | -22 | 38 |
| 18 | Cremonese | 38 | 8 | 10 | 20 | 32 | 57 | -25 | 34 |
| 19 | Verona | 38 | 3 | 12 | 23 | 25 | 61 | -36 | 21 |
| 20 | Pisa | 38 | 2 | 12 | 24 | 26 | 71 | -45 | 18 |


