Rauðu djöflarnir ætla að sannfæra Anderson á HM - Arsenal og Man City berjast um Mingueza - Real Madrid vill Schlotterbeck
   sun 12. apríl 2026 12:29
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Genoa svo gott sem öruggt með sætið í efstu deild
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Genoa 2 - 1 Sassuolo
1-0 Ruslan Malinovskyi ('18 )
1-1 Ismael Kone ('57 )
2-1 Caleb Ekuban ('84 )
Rautt spjald: Mikael Egill Ellertsson, Genoa ('45)
Rautt spjald: Domenico Berardi, Sassuolo ('45)

Mikael Egill Ellertsson var á sínum stað í byrjunarliði Genoa þegar liðið mætti Sassuolo í fyrsta leik dagsins í efstu deild á Ítalíu.

Ruslan Malinovskyi náði forystunni í fyrri hálfleik með frábæru skoti utan vítateigs. Leikurinn var jafn, skemmtilegur og opinn en hvorugu liði tókst að bæta marki við fyrir leikhlé.

Þegar menn voru á leið til búningsklefa voru Mikael Egill og Domenico Berardi, fyrirliði Sassuolo, reknir af velli með beint rautt spjald eftir atvik í leikmannagöngunum.

   12.04.2026 11:36
Mikael og Berardi reknir af velli í leikmannagöngunum


Liðin mættu því til leiks í seinni hálfleikinn tíu gegn tíu og jafnaði Ismaël Kone metin þegar hann var fyrstur að bregðast við eftir marktilraun liðsfélaga síns. Hann skoraði af stuttu færi og var áfram jafnræði með liðunum í síðari hálfleiknum.

Það var talsvert minna um færi eftir leikhléð en Caleb Ekuban tókst að skora á lokakaflanum. Ekuban skoraði af stuttu færi eftir magnaðan undirbúning frá Junior Messias svo lokatölur urðu 2-1.

Genoa er níu stigum frá fallsvæðinu þegar sex umferðir eru eftir af deildartímabilinu. Lærlingar Daniele De Rossi eru því svo gott sem öruggir með sæti sitt í efstu deild.

Nýliðar Sassuolo eru að gera frábæra hluti og sitja sex stigum fyrir ofan Genoa.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
banner