Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 22. nóvember 2021 19:26
Brynjar Ingi Erluson
Mourinho stóð við loforðið - Gaf 18 ára leikmanni rándýra skó
Felix Afena-Gyan hljóp til Jose Mourinho eftir að hann gerði fyrsta mark sitt fyrir félagið
Felix Afena-Gyan hljóp til Jose Mourinho eftir að hann gerði fyrsta mark sitt fyrir félagið
Mynd: EPA
Portúgalski þjálfarinn Jose Mourinho lofaði hinum 18 ára gamla Felix Afena-Gyan að hann myndi gefa honum nýja Balenciaga skó ef hann myndi skora fyrir Roma gegn Genoa í gær, en hann gerði gott betur en það og skoraði tvö.

Þrátt fyrir ungan aldur er Afena-Gyan hefur Gyan spilað þrjá leiki fyrir Roma á leiktíðinni.

Hann fékk hálftíma gegn Cagliari og hálfleik gegn Milan. Hann þykir gríðarlegt efni og sýndi það í gær er hann skoraði bæði mörk Roma í 2-0 sigrinum á Genoa.

Afena-Gyan er afar ungur og þénar því risaupphæðir hjá Roma en hann vildi fá sér nýja skó frá Balenciaga. Mourinho lofaði honum því að hann myndi kaupa skóna handa honum ef hann myndi skora og kom það honum í gírinn.

Hann gerði fyrra markið á 82. mínútu með skoti af stuttu færi og gulltryggði svo sigurinn með glæsilegu skoti fyrir utan teig undir lokin. Mourinho stóð við sitt og færði honum skóna í dag en þeir kosta 800 evrur og má sjá myndband af því þegar Mourinho afhendir honum skóna.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner