Kasper Högh, fyrrum leikmaður Vals, er núna í eldlínunni gegn Inter í Meistaradeildinn. Bodö/Glimt, lið hans, er að reyna að slá ítalska stórliðið Inter úr keppninni.
Danski landsliðsþjálfarinn Brian Riemer mun fylgjast vel með gangi mála í kvöld. Hann segir Högh í myndinni fyrir mikilvæga leiki í mars eftir spilamennsku sína undanfarið.
Danski landsliðsþjálfarinn Brian Riemer mun fylgjast vel með gangi mála í kvöld. Hann segir Högh í myndinni fyrir mikilvæga leiki í mars eftir spilamennsku sína undanfarið.
„Frá mínu sjónarhorni getur þú sett spurningamerki við það að mikið af hans mörkum hafa komið í norsku deildinni. Hversu góður er hann þá í alvöru?" sagði Riemer við Viaplay.
En hann er núna líka búinn að skora mikið og leggja upp í Meistaradeildinni gegn nokkrum af bestu liðum Evrópu.
„Við getum hætt þessari umræðu núna. Hann hefur staðið sig frábærlega gegn risaliðum - Atletico, Manchester City og Inter - og við verðum að taka því alvarlega. Við gerum það."
Riemer hefur rætt við Högh og segir hann inn í myndinni fyrir leiki í mars þegar Danmörk spilar í umspili um að komast inn á HM.
Það er ekki skrítið að það skuli gleymast að þessi 25 ára gamli sóknarmaður spilaði með Val sumarið 2020. Hann kom hingað á lánssamningi frá danska félaginu Randers. Hann ætlaði að skora mörk hér á landi en tókst það ekki þar sem hann var að koma til baka eftir meiðsli.
Högh gekk í raðir Bodö/Glimt árið 2024 og þar hefur hann gjörsamlega sprungið út.
Athugasemdir


