Manchester United horfir til Nottingham Forest í leit að arftaka Casemiro samkvæmt heimildum vefmiðilsins GiveMeSport.
Leikmaðurinn sem um ræðir er miðjumaðurinn Ibrahima Sangare sem hefur heillað United að undanförnu.
Leikmaðurinn sem um ræðir er miðjumaðurinn Ibrahima Sangare sem hefur heillað United að undanförnu.
Talið er að Man Utd vilji bæta við sig tveimur miðjumönnum í sumar en Elliot Anderson, liðsfélagi Sangare, hefur einnig verið orðaður við félagið. Þá eru Carlos Baleba, Sandro Tonali, og Adam Wharton einnig á óskalistanum ásamt Angelo Stiller, sem spilar með Stuttgart í Þýskalandi.
Sangare er hávaxinn og sterkur miðjumaður sem hefur leikið vel með Nottingham Forest upp á síðkastið. Hann var maður leiksins gegn Liverpool um síðustu helgi.
Sangare verður 29 ára seinna á þessu ári og spurning er hvort það vinni gegn honum.
Athugasemdir

