Bruno sagður falur fyrir 60 milljónir punda - Sancho aftur til Dortmund - Zidane tekur við Frökkum - De Zerbi til Spurs
banner
   þri 24. mars 2026 11:40
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Útlit fyrir að Tudor verði látinn fara í vikunni
Mynd: EPA
Mikið er slúðrað um það þessa stundina að Igor Tudor, bráðabirgðastjóri Tottenham, verði látinn fara frá Tottenham á næstu dögum. Í grein á Teamtalk segir að samkomulag um starfslok muni nást. Málið er á viðkvæmu stigi þar sem Igor missti föður sinn um helgina.

Tudor hefur stýrt Tottenham í sjö leikjum en sá sjöundi tapaðist, 0-3, gegn Nottingham Forest á sunnudag. Tottenham er einungis stigi fyrir ofan fallsæti í ensku úrvalsdeildinni þegar sjö umferðir eru eftir.

Adi Hutter er orðaður við starfið hjá Tottenham en hann hefur verið án starfs síðan í október. Austurríkismaðurinn gerði flotta hluti hjá Young Boys, Eintracht Frankfurt og Mónakó.

Robbie Keane, Roberto De Zerbi, Sean Dyche og Chris Hughton eru einnig orðaðir við starfið. Svo er spurning hvort Tottenham vilji ráða stjóra til frambúðar eða áfram einungis til bráðabirgða.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 31 21 7 3 61 22 +39 70
2 Man City 30 18 7 5 60 28 +32 61
3 Man Utd 31 15 10 6 56 43 +13 55
4 Aston Villa 31 16 6 9 42 37 +5 54
5 Liverpool 31 14 7 10 50 42 +8 49
6 Chelsea 31 13 9 9 53 38 +15 48
7 Brentford 31 13 7 11 46 42 +4 46
8 Everton 31 13 7 11 37 35 +2 46
9 Fulham 31 13 5 13 43 44 -1 44
10 Brighton 31 11 10 10 41 37 +4 43
11 Sunderland 31 11 10 10 32 36 -4 43
12 Newcastle 31 12 6 13 44 45 -1 42
13 Bournemouth 31 9 15 7 46 48 -2 42
14 Crystal Palace 30 10 9 11 33 35 -2 39
15 Leeds 31 7 12 12 37 48 -11 33
16 Nott. Forest 31 8 8 15 31 43 -12 32
17 Tottenham 31 7 9 15 40 50 -10 30
18 West Ham 31 7 8 16 36 57 -21 29
19 Burnley 31 4 8 19 33 61 -28 20
20 Wolves 31 3 8 20 24 54 -30 17
Athugasemdir
banner
banner