Fylkismenn tóku á móti hafnfirðingunum í FH í kvöld þegar lokaleikir 3.umferðar Bestu deildar karla fór fram.
Fylkismenn voru fyrir umferðina stigalausir og í leit af sínum fyrstu stigum á meðan FH voru ósigraðir með einn sigur og jafntefli undir beltinu fyrir leikinn í kvöld.
Lestu um leikinn: Fylkir 4 - 2 FH
„Frábært að fá fyrstu þrjú stigin og fyrsta sigurinn á heimavelli, frábær stemning í stúkunni og fullt af fólki sem hvatti okkur öll til dáða." Sagði Rúnar Páll Sigmundsson þjálfari Fylkis eftir sigurinn gegn FH.
„Eftir 2-2 jöfnunarmakið að þá var þvílík stemning hérna í stúkunni sem ýtti okkur áfram og við fundum fyrir kraftinum þar og bara mikil áræðni í drengjunum og dugnaður sem skilaði þessum sigri. Vinnusamir og vel skipulagðir og flottir."
Rúnar Páll fékk gult spjald þegar FH minnkaði muninn í 2-1 en honum fannst brotið á Ólafi Kristófer.
„Mér fannst vera brotið á Óla og við sjáum það aftur í sjónvarpinu að það sé brot og allavega mat ég það þannig að þetta væri brot og var eitthvað að skammast í línuverðinum með það."
FH jafnaði þegar rúmlega 80 mínútur voru á klukkunni en það fór þó ekki um þá á hliðarlínunni.
„Nei nei alls ekki, það var bara þannig gír í okkur og við vorum að komast á bakvið þá og fá opnanir hjá þeim og fin 3-4 góð skotfæri í seinni hálfleik og þeir voru opnir FH-ingarnir og skoruðum nátturlega tvö frábær mörk."
Það var ljós í leiknum að stúkan átti sinn uppáhaldsmann sem byrjaði á bekknum og hér Óskar Borgþórsson og kallaði eftir honum inná völl sem Rúnar Páll varð við og hann skilaði stoðsendingu og marki.
„Frábært fyrir hann og auðvitað hlýðir maður stúkunni. Maður verður bara að hlusta á stúkuna en þetta bara bara frábært og Óskar er einn af okkar kanntmönnum og hefur þessa eiginleika og er góður leikmaður og ungur sem er að læra."
Nánar er rætt við Rúnar Pál í spilaranum hér fyrir ofan.
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | |























