Arsenal hefur áhuga á Barcola - Mbeumo færist nær Man Utd - Konate hafnaði tilboði Liverpool
   þri 24. júní 2025 15:30
Elvar Geir Magnússon
AC Milan lánar ungstirnið
Mynd: EPA
AC Milan hefur lánað ungstirnið Francesco Camarda til Lecce. Samkomulagið er með ýmsum ákvæðum, Lecce hefur möguleika á að kaupa leikmanninn og þá er Milan með ákvæði um að geta keypt hann til baka.

Þessi 17 ára sóknarmaður vildi fá meiri spiltíma í ítölsku A-deildinni en Milan vill hafa stjórn á framtíð hans.

Camarda varð yngsti leikmaður til að spila í ítölsku A-deildinni 2023, 15 ára og 260 daga gamall. Þá varð hann yngsti leikmaður Meistaradeildarinnar á síðasta tímabili.

Hann hefur raðað inn mörkum fyrir yngri lið AC Milan en enn ekki afrekað að skora fyrir aðalliðið.
Athugasemdir
banner
banner