
Arsenal hefur áhuga á að fá sóknarmann frá PSG og Tottenham hefur snúið sér annað fyrst Mbeumo virðist á leið á Old Trafford. Þetta og ýmislegt fleira í slúðurpakkanum.
Arsenal hefur sýnt áhuga á franska framherjanum Bradley Barcola (22) hjá Paris Saint-Germain. Hann hefur einnig verið orðaður við Bayern München og Liverpool. (L'Equipe)
Sóknarmaðurinn Bryan Mbeumo (25) hjá Brentford færist nær Manchester United sem hefur lagt fram tilboð upp á rúmlega 60 milljónir punda. (BBC)
Tottenham mun reyna að fá Eberechi Eze (26) frá Crystal Palace þar sem félagið er að tapa samkeppninni um Mbeumo. (Talksport)
Ibrahima Konate (26) hefur hafnað tilboði Liverpool um nýjan samning. (Guardian)
Newcastle er í viðræðum við Burnley um möguleg kaup á markverðinum James Trafford (22). (Fabrizio Romano)
Jamie Gittens (20), vængmaður Borussia Dortmund, er enn á óskalista Bayern München þrátt fyrir að hafa gert munnlegt samkomulag við Chelsea um kaup og kjör. (Sky Þýskaland)
Juventus er tilbúið að bjóða serbneska framherjann Dusan Vlahovic (25) og brasilíska miðjumanninn Douglas Luiz (27) til Manchester United til að fá Jadon Sancho (25) til Tórínó. (Gazzetta dello Sport)
Barcelona er nálægt því að fá sænska vængmanninn Roony Bardghji (19) frá FC Kaupmannahöfn fyrir um 2 milljónir punda. (Sky Sports)
Mónakó á enn eftir að ná samkomulagi við franska miðjumanninn Paul Pogba (32) þó fréttir hafi verið um annað. (Sky Sports)
Ungverski vinstri bakvörðurinn Milos Kerkez (21) mun gangast undir læknisskoðun hjá Liverpool í dag áður en hann gengur til liðs við meistarana frá Bournemouth. (Athletic)
Real Madrid mun krefjast meira en 77 milljóna punda fyrir brasilíska vængmanninn Rodrygo (24) sem hefur verið orðaður við Arsenal og fleiri félög í ensku úrvalsdeildinni. (Cadena Ser)
Nottingham Forest hefur náð samkomulagi við Juventus um 19 milljóna punda kaup á bandaríska vængmanninnum Timothy Weah (25) og belgíska vængmanninum Samuel Mbangula (21). (ESPN)
Middlesbrough hefur áhuga á að fá varnarmanninn Kaine Kesler-Hayden (22) frá Aston Villa, en mun mæta samkeppni frá öðrum félögum í Championship-deildinni; Southampton og Coventry City. (Birmingham World)
Miðjumaðurinn Steven Alzate (26) gæti verið á förum frá Hull City en Valencia og Sheffield United hafa sýnt áhuga. (Hull Live)
Milljarðamæringurinn John Textor, sem hefur selt 43% hlut sinn í Crystal Palace fyrir 190 milljónir punda, er að íhuga að kaupa Championship-félagið Sheffield Wednesday. (The Star)
Athugasemdir