
Fyrir tímabilið bjuggust allir við því að Völsungur myndi enda neðst í Lengjudeildinni í sumar. Einhverjir voru jafnvel hræddir um að þetta myndi minna á tímabilið 2013 þegar liðið kom upp, endaði með tvö stig og markatöluna 15-85.
En það er fjarri lagi. Eftir átta leiki er Húsavíkurliðið í sjötta sæti með 13 stig. Þeir eru með sex stigum meira en Fylkir sem spáð var efsta sæti fyrir mót.
En það er fjarri lagi. Eftir átta leiki er Húsavíkurliðið í sjötta sæti með 13 stig. Þeir eru með sex stigum meira en Fylkir sem spáð var efsta sæti fyrir mót.
„Ég er eiginlega bara orðlaus yfir þessu," sagði Sæbjörn Steinke þegar rætt var um Völsung í Innkastinu.
Þetta gengi Völsungs kemur gríðarlega á óvart.
„Alli Jói (þjálfari liðsins) á risa hrós skilið. Sá er að búa til... ég veit eiginlega ekki hvaða leikmenn þetta eru. Ég fylgist ekki rosalega mikið með 2. deild. Jakob Héðinn skorar þrennu en ég hafði ekki heyrt nafnið fyrr en ég las nafnið í úrslitafrétt í fyrra. Svo sé ég hann gegn Þór fyrr á þessu tímabili."
„Það er ótrúlegt hvað hann er að kreista úr óþekktum leikmönnum. Eðlilega byrja menn óþekktir og allt það, en Alli Jói er að vinna frábært starf," sagði Sæbjörn.
„Ég horfði á þennan leik með öðru auganu og Völlararnir voru bara ógeðslega flottir," sagði Haraldur Örn Haraldsson um sigur Völsungs á Grindavík í síðustu umferð Lengjudeildarinnar.
Þess má geta að Aðalsteinn Jóhann Friðriksson, þjálfari Völsungs, er einnig að þjálfa kvennalið félagsins sem er búið að vinna alla sína leiki í 2. deild í sumar. „Hann er að sanna sig sem alvöru þjálfari. Vel gert," sagði Sæbjörn.
Hægt er að hlusta á Innkastið í heild sinni hér fyrir neðan.
Lengjudeild karla
Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
---|---|---|---|---|---|---|---|
1. ÍR | 9 | 5 | 4 | 0 | 12 - 4 | +8 | 19 |
2. Njarðvík | 9 | 4 | 5 | 0 | 21 - 9 | +12 | 17 |
3. HK | 9 | 5 | 2 | 2 | 17 - 9 | +8 | 17 |
4. Þór | 9 | 4 | 2 | 3 | 20 - 17 | +3 | 14 |
5. Þróttur R. | 9 | 4 | 2 | 3 | 16 - 15 | +1 | 14 |
6. Völsungur | 9 | 4 | 1 | 4 | 15 - 19 | -4 | 13 |
7. Keflavík | 8 | 3 | 3 | 2 | 15 - 9 | +6 | 12 |
8. Grindavík | 8 | 3 | 2 | 3 | 22 - 19 | +3 | 11 |
9. Leiknir R. | 9 | 2 | 2 | 5 | 10 - 22 | -12 | 8 |
10. Fylkir | 9 | 1 | 4 | 4 | 10 - 14 | -4 | 7 |
11. Fjölnir | 9 | 1 | 3 | 5 | 11 - 19 | -8 | 6 |
12. Selfoss | 9 | 2 | 0 | 7 | 6 - 19 | -13 | 6 |
2. deild kvenna
Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
---|---|---|---|---|---|---|---|
1. Völsungur | 7 | 7 | 0 | 0 | 34 - 6 | +28 | 21 |
2. Selfoss | 7 | 7 | 0 | 0 | 23 - 5 | +18 | 21 |
3. ÍH | 6 | 6 | 0 | 0 | 39 - 7 | +32 | 18 |
4. Fjölnir | 6 | 3 | 2 | 1 | 12 - 10 | +2 | 11 |
5. Dalvík/Reynir | 7 | 3 | 0 | 4 | 18 - 17 | +1 | 9 |
6. Vestri | 6 | 2 | 0 | 4 | 10 - 20 | -10 | 6 |
7. ÍR | 6 | 1 | 2 | 3 | 9 - 15 | -6 | 5 |
8. Einherji | 6 | 1 | 2 | 3 | 9 - 18 | -9 | 5 |
9. Sindri | 7 | 1 | 1 | 5 | 10 - 19 | -9 | 4 |
10. KÞ | 4 | 1 | 1 | 2 | 4 - 14 | -10 | 4 |
11. Álftanes | 6 | 1 | 0 | 5 | 9 - 18 | -9 | 3 |
12. Smári | 6 | 0 | 0 | 6 | 1 - 29 | -28 | 0 |
Athugasemdir