Arsenal hefur áhuga á Barcola - Mbeumo færist nær Man Utd - Konate hafnaði tilboði Liverpool
   þri 24. júní 2025 12:58
Elvar Geir Magnússon
Geta ekki æft vegna hitans
Enzo Maresca, stjóri Chelsea.
Enzo Maresca, stjóri Chelsea.
Mynd: EPA
Chelsea er að taka þátt í HM félagsliða í Bandaríkjunum en liðið hefur ekki getað æft almennilega vegna gríðarlegs hita.

Það er steikjandi hiti í Philadelphiu og hitastigið farið yfir 37 gráður í fyrsta sinn í þrettán ár. Enzo Maresca, stjóri Chelsea, segir ekki hægt að æfa við þessar aðstæður.

„Við reynum okkar besta við að æfa við þessar aðstæður. Æfingin í gær var afskaplega stutt," segir Maresca en mikill raki í loftinu hefur ekki hjálpað.

Leikið er við erfiðar aðstæður á HM í Bandaríkjunum. Grasvellirnir hafa fengið gagnrýni og þá hefur mætingin á leikina ekki verið góð.

Chelsea þarf að ná jafntefli gegn Esperance frá Túnis í nótt til að tryggja sig áfram úr riðlakeppninni, eftir að hafa tapað 3-1 fyrir Flamengo. Fyrirliðinn Reece James er veikur og Nicolas Jackson tekur út leikbann.
Athugasemdir
banner