Arsenal hefur áhuga á Barcola - Mbeumo færist nær Man Utd - Konate hafnaði tilboði Liverpool
   þri 24. júní 2025 11:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sunderland búið að finna sóknarmann
Lauriente í grænu.
Lauriente í grænu.
Mynd: EPA
Fréttaflutningur á Ítalíu er á þá leið að Sunderland sé í viðræðum um kaup á Armand Lauriente, vængmann Sassuolo.

Lauriente, sem er 26 ára, vann með Regis Le Bris, stjóra Sunderland, hjá Lorient á sínum tíma.

Hann hefur spilað yfir 100 leiki með Sassuolo og hélt tryggð við félagið þrátt fyrir fall úr Seríu A. Hann átti mjög gott tímabil í vetur, skroraði 18 mörk og lagði upp sex í 33 leikjum í B-deildinni. Það hjálpaði liðinu að vinna B-deildina og koma sér upp aftur.

Sunderland, sem vann umspilið í ensku Championship-deildinni, er að reyna ganga frá sínum öðrum kaupum í sumar. Enzo Le Fee, sem var á láni, var keyptur alfarið frá Roma.
Athugasemdir
banner