Danski miðillinn Tipsbladet fjallar um að íslenski landsliðsmaðurinn Mikael Neville Anderson sé falur fyrir tvær milljónir evra.
Hann sé með ákvæði í samningi sínum sem önnur félag geta virkjað með því að bjóða þá upphæð í hann, og er hægt að virkja það ákvæði á hvaða tímapunkti sem er á meðan samningurinn er í gildi.
Tvær milljónir evra eða 15 milljónir danskra króna eru tæplega 300 milljónir íslenskra króna. Það er sama upphæð og AGF greiddi Midtjylland fyrir Mikael fyrir fjórum árum síðan.

Mikael, sem verður 27 ára í næstu viku, skrifaði í vetur undir framlengingu á samningi sínum og er nú samningsbundinn fram á sumarið 2028.
Hann er algjör lykilmaður í liði AGF og er eitt af stærstu nöfnum dönsku úrvalsdeildarinnar. AGF var í titilbaráttunni þegar langt var liðið á mótið en síðustu tveir mánuðirnir voru virkilega daprir; einungis eitt stig fengið úr níu síðustu leikjunum og úr varð að liðið missti af Evrópusæti.
Hann hefur tekið þátt í 33 landsleikjum og skorað í þeim tvö mörk. Á ferli sínum hefur Sandgerðingurinn leikið með Midtjylland, Vendsyssel, Excelsior og AGF.
Athugasemdir