Franska félagið Lille hefur haft samband við Olivier Giroud, markahæsta leikmann í sögu franska landsliðsins, en þetta segir L'Equipe í dag.
Giroud er 38 ára gamall og spilar með Los Angeles FC í Bandaríkjunum, en þar hefur hann spilað síðasta árið.
Frakkinn hefur ekki alveg fundið sig í bandaríska boltanum eftir að hafa raðað inn mörkunum í Evrópu er útlit fyrir að hann sé á heimleið.
L'Equipe segir að Lille hafi sett sig í samband við föruneyti Giroud og unnið sé að því að koma honum aftur í franska boltann.
Giroud spilaði með Tours og Montpellier í Frakklandi áður en hann hélt til Arsenal. Þar lék hann í sex ár og gerði 105 mörk í 253 leikjum áður en hann hélt til Chelsea, þar sem hann varð meðal annars Evrópumeistari.
Ef hann gengur í raðir Lille verður hann liðsfélagi Hákonar Arnar Haraldssonar, sem hefur gegnt lykilhlutverki í liðinu síðustu tvö árin.
Athugasemdir