Wolves 2 - 0 Aston Villa
1-0 Joao Gomes ('61 )
2-0 Rodrigo Gomes ('98)
1-0 Joao Gomes ('61 )
2-0 Rodrigo Gomes ('98)
Botnlið Wolves tók á móti toppbaráttuliði Aston Villa í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni og var staðan markalaus eftir nokkuð rólegan fyrri hálfleik.
Aston Villa virkaði hættulegra liðið en komst lítið áleiðis gegn vinnusömum Úlfum, sem náðu svo forystunni í síðari hálfleik.
Joao Gomes fagnaði endurkomu í byrjunarliðið með frábæru marki á 61. mínútu eftir einfalda sókn þar sem miðjumenn Aston Villa, aðallega Ross Barkley, virtust missa einbeitingu í smá stund. Gomes nýtti sér það með að skora frábært mark frá vítateigslínunni sem Emiliano Martínez átti ekki möguleika á að verja.
Lærlingar Unai Emery í sterku liði Aston Villa reyndu að finna jöfnunarmark en áttu í miklum erfiðleikum með að skapa sér færi. Besta færið kom á lokasekúndunum en Yerson Mosquera bjargaði á línu og brunuðu Úlfarnir í sókn skömmu síðar. Þar tókst Rodrigo Gomes að innsigla sigurinn eftir skyndisókn, svo lokatölur urðu 2-0. Gomes kom inn af bekknum á 93. mínútu og skoraði markið fimm mínútum síðar.
Þetta er aðeins annar deildarsigur Wolves á tímabilinu þar sem liðið er núna með 13 stig eftir 29 umferðir - 14 stigum frá öruggu sæti. Úlfarnir eru hinsvegar komnir með fleiri stig heldur en Derby County náði á sínum tíma svo það met yfir lægsta stigafjölda lifir enn!
Aston Villa er áfram í þriðja sæti þrátt fyrir að vera aðeins með einn deildarsigur í síðustu fimm leikjum. Villa er þremur stigum fyrir ofan Manchester United sem á leik til góða um helgina.
Athugasemdir




