Davíð Smári og leikmenn hans í Njarðvík gerðu góða ferð vestur á Ísafjörð í kvöld þar sem þeir unnu lið Vestra 0:3.
Fótbolti.net ræddi við Davíð Smára þjálfara Njarðvíkur og fyrrverandi þjálfara Vestra eftir leikinn.
Lestu um leikinn: Vestri 0 - 3 Njarðvík
„Ég er ofboðslega ánægður með orkustigið og vinnusemina. Mér fannst við verjast vel þegar við þurftum að vera þéttir og við héldum vel í boltann þegar við þurftum að halda í boltann. Ég er heilt yfir gríðarlega ánægður með liðið."
Njarðvíkurliðið var rosalega orkumikið í kvöld, hvaðan kom orkan?
„Við komum inn í þennan leik gegn gríðarlega sterkum andstæðingi og við ætluðum að vera duglegir, sýna sterka liðsheild og vera betra liðið og mér fannst við vera það í dag."
Davíð þjálfaði Vestra í þrjú tímabil og hann var að þjálfa í fyrsta sinn gegn gamla liðinu sínu. Hvernig var að þjálfa gegn gömlu félögunum?
„Miklar tilfinningar að keyra inn í bæinn og sjá allt fólkið sem studdi mann. Mér þykir gríðarlega vænt um þá leikmenn sem spiluðu fyrir mig í Vestra og hef hef ekkert nema góðar tilfinningar til Vestra."























