„Þær skora náttúrulega eftir eina mínútu eftir skyndisókn hjá þeim. Svo aftur í fyrri hálfleik en mér fannst leikurinn ágætur hjá okkur. Við fengum fullt af færum til að jafna leikinn en nýtum ekkert af þessum færum. Svo var þetta þriðja mark sem Harpa skorar svolítið stór biti,“ sagði Pétur Pétursson, þjálfari Vals, eftir að hafa mátt sætta sig við 3-1 tap gegn Stjörnunni fyrr í kvöld.
Lestu um leikinn: Stjarnan 3 - 1 Valur
Pétur gerði þrjár breytingar á byrjunarliði sínu frá síðasta leik en þær Dóra María, Stefanía og markahrókurinn Elín Metta voru allar á bekknum. Við spurðum Pétur út í ástæðu fyrir breytingunum.
„Þetta var liðið sem ég vildi byrja á og það er bara ástæðan.“
Valskonur eru áfram í 3. sæti deildarinnar og búin að missa Breiðablik og Þór/KA langt fram úr sér. Pétur hefði viljað gera harðari atlögu að titlinum.
„Ég vildi vera í baráttunni um titilinn og baráttan er búin að vera ansi stutt. Ég er svekktur útaf því.“
Valsliðinu hefur gengið illa að undanförnu en síðasti sigurleikur liðsins var fyrir mánuði. Síðan hafa komið tveir jafnteflisleikir og þrír tapleikir auk þess sem liðið hefur aðeins skorað tvö mörk í fimm leikjum.
„Það er engin krísa. Við erum bara að reyna að búa til nýtt lið hjá Val. Það tekur tíma en það mun koma, ég skal lofa þér því,“ sagði Pétur að lokum en hægt er að horfa á allt viðtalið við hann í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir





















