„Maður veit að leikirnir hérna verða svona þannig að við vorum tilbúnir í það. Lítið að gerast í fyrri hálfleik en mér finnst við hafa gert nóg til þess að ná í öll stigin en þetta datt ekki með okkur í dag. “
Sagði Ragnar SIgurðsson þjálfari Fram um leikinn í viðtali við Fótbolta.net eftir markalaust jafntefli lærisveina hans gegn Keflavík í á HS Orkuvellinum í Reykjanesbæ fyrr í dag.
Sagði Ragnar SIgurðsson þjálfari Fram um leikinn í viðtali við Fótbolta.net eftir markalaust jafntefli lærisveina hans gegn Keflavík í á HS Orkuvellinum í Reykjanesbæ fyrr í dag.
Lestu um leikinn: Keflavík 0 - 0 Fram
Leikurinn í dag má teljast afar mikilvægur fyrir bæði lið. Fram var í þeirri stöðu að geta slitið sig aðeins frá pakkanum við botn deildarinnar á meðan að Keflavík þurfti lífsnauðsynlega á sigri að halda. Hvernig gekk undirbúningur liðsins fyrir leikinn?
„Strákarnir taka þetta mjög alvarlega og við erum harðir við þá líka. Æfingarvikan var mjög góð og við vorum með fínt leikplan sem að virkaði reyndar aðallega kannski síðasta korterið. En allir gíraðir í þetta og við kláruðum leikinn með stæl
Framundan hjá Fram er viðureign við topplið deildarinnar Víkinga. Hvernig leggst það verkefni í Ragnar að taka á móti liði sem að öllum líkindum er verðandi Íslandsmeistari?
„Það er bara skemmtilegt, alltaf skemmtilegt að spila við bestu liðin þannig að við mætum bara gíraðir í þann leik.“
Sagði Ragnar en allt viðtalið við hann má sjá í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir