Man Utd íhugar að selja Ugarte - Liverpool vill leikmann í skiptum fyrir Salah - Vini Jr til Englands?
Álitið - Hvaða lið verður spútnikliðið?
Jökull: Menn klára páskaeggin í kvöld og svo erum við klárir
Álitið - Hvaða lið veldur mestu vonbrigðum?
Hallgrímur Mar eftir að hafa byrjað á bekknum: „Hvað heldur þú?“
KA menn klöppuðu hreindýrum fyrir 0-5 sigurinn
Kristófer Ingi: Ekkert heyrt um samning og fókusa á að spila
Todor Hristov eftir 0-5 tap: „Aðeins dýrara lið en okkar“
Linta svekktur: Ánægður með spilamennskuna
Gylfi fékk högg og bólgnaði - „Það þarf bara að skoða það“
Alex Freyr: Draugar síðustu leikja sem koma
„Of margir sem eru spurningamerki sem er ekki gott þegar mótið er að hefjast“
Venni eftir sigur í Eyjum: Er alveg í skýjunum
Elías Már um samkeppnina: Erum tveir ólíkir framherjar og styðjum við bakið á hvor öðrum
Óli Skúla um danskan framherja: Þú ert þá að segja mér fréttir
Siggi Höskulds: Það er fokking óþolandi
„Ákvað að skjóta í markmanninn og það virkaði"
Þrennt sem stóð upp úr hjá Jóa Kalla
Álitið: Hver verður stoðsendingahæstur?
Bestur í Mjólkurbikarnum - „Klúbbur sem á ekkert að vera í þessari deild“
Tap í uppbótartíma en Konni er stoltur
   fös 28. febrúar 2014 12:00
Magnús Már Einarsson
Lars Lagerback: Ekki heppnir með riðil
Lars og Heimir á fréttamannafundinum í dag.
Lars og Heimir á fréttamannafundinum í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eiður Smári Guðjohnsen.
Eiður Smári Guðjohnsen.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Ég get ekki sagt að við höfum verið heppnir," sagði Lars Lagerback annar af landsliðsþjálfurum Íslands við Fótbolta.net í dag aðspurður út í riðil Íslands í undankeppni EM 2016.

Ísland er í A-riðli með Hollendingum, Tékkum, Tyrkjum, Lettum og Kasakstan.

,,Það eru nokkrir riðlar svipaðir okkar og við erum í einum af erfiðustu riðlunum. Það eru fjögur góð lið og síðan fengum við erfiðasta liðið úr potti sex (Kasakstan). Ég var að vonast eftir að fá lið eins og Gíbraltar eða Möltu með fullri virðingu fyrir þeim."

,,Þetta verður mjög erfiður riðill en ég held að hann verði líka jafn. Besta liðið, Holland, mun örugglega tapa stigum hér og þar og þetta verður áhugaverður riðill eins og síðast."


Ánægður með Elmar og Björn Daníel
Landsliðsþjálfararnir Lars og Heimir Hallgrímsson tilkynntu í dag landsliðshópinn sem mætir Wales í vináttuleik á miðvikudag.

,,Við fáum færri vináttuleiki núna. Við slepptum því að velja nokkra reynda leikmenn núna og við viljum skoða óreyndari menn," sagði Lars en Theódór Elmar Bjarnason og Björn Daníel Sverrisson fá báðir tækifæri í hópnum.

,,Elmar stóð sig mjög vel og við getum notað hann í mismunandi stöðum. Björn Daníel spilaði ekki svo mikið síðast en hann stóð sig vel á æfingum og virðist vera leikmaður fyrir framtíðina. Þess vegna völdum við hann í hópinn núna. Við höfum ekki ákveðið neitt en vonandi getum við gefið honum meiri spiltíma núna."

Eiður ekki búinn að loka á landsliðið
Eiður Smári Guðjohnsen gaf það til kynna eftir umspilsleikina gegn Króatíu að það gætu hafa verið hans síðustu leikir með landsliðinu en framhaldið er ekki ljóst hjá honum.

,,Ég talaði við Eið fyrir nokkrum vikum og hann hefur ekki lokað á landsliðið. Hann á eftir að ákveða hvort hann vilji halda áfram með landsliðinu og það veltur líka á því hvort hann haldi áfram hjá Club Brugge eftir tímabilið eða hvort hann fari í annað félag," sagði Lars.

,,Við höfum samþykkt að loka ekki neinum dyrum. Við verðum í sambandi og vonandi veit hann í maí hver staðan verður hjá honum hvað varðar félagslið. Þá ákveðum við hvort hann vilji halda áfram og hvort við viljum hafa hann í hópnum."
Slapp
banner
banner