Benfica 1 - 4 Chelsea
0-1 Reece James ('64)
1-1 Angel Di María ('95, víti)
1-2 Christopher Nkunku ('108)
1-3 Pedro Neto ('115)
1-4 Kiernan Dewsbury-Hall ('117)
Rautt spjald: Gianluca Prestianni, Benfica ('92)
0-1 Reece James ('64)
1-1 Angel Di María ('95, víti)
1-2 Christopher Nkunku ('108)
1-3 Pedro Neto ('115)
1-4 Kiernan Dewsbury-Hall ('117)
Rautt spjald: Gianluca Prestianni, Benfica ('92)
Benfica og Chelsea áttust við í 16-liða úrslitum á HM félagsliða og var enska stórveldið sterkari aðilinn á vellinum.
Chelsea tókst þó ekki að skora í fyrri hálfleik svo staðan var markalaus þegar lið gengu til búningsklefa, þrátt fyrir yfirburði þeirra bláklæddu.
Síðari hálfleikurinn var lokaðari en sá fyrri en Chelsea var áfram sterkari aðilinn og tók forystuna á 64. mínútu. Reece James skoraði beint úr aukaspyrnu sem hann tók úti á kanti, hann sá að Anatoliy Trubin var ekki að gæta að nærhorninu svo hann lét vaða og skoraði frábært mark.
Benfica tókst ekki að skapa sér mikið og voru aðeins fjórar mínútur eftir af venjulegum leiktíma þegar stöðva þurfti leikinn vegna þrumuveðurs. Leikurinn var stopp í um tvær klukkustundir þar til lokamínúturnar gátu farið fram.
Sigur Chelsea virtist vera í lítilli hættu allt þar til undir lok uppbótartímans, þegar Malo Gusto varð fyrir því óláni að fá bolta í hendi af stuttu færi. Gusto gat lítið gert til að koma handleggnum sínum frá og var vítaspyrna dæmd. Angel Di María steig á vítapunktinn og jafnaði af miklu öryggi.
Leikurinn fór því í framlengingu og byrjaði hún fjörlega þegar Gianluca Prestianni fékk að líta seinna gula spjaldið sitt fyrir tæklingu.
Tíu leikmenn Benfica vörðust vel og voru stórhættulegir í skyndisóknum þar sem Di María fékk tvö góð marktækifæri en tókst ekki að skora.
Chelsea fékk einnig flott marktækifæri en boltinn rataði ekki í netið fyrr en í seinni hálfleik framlengingarinnar. Chelsea vann þá boltann hátt uppi á vellinum eftir mistök í vörn Benfica og gerði Christopher Nkunku mjög vel að klára með marki eftir atgang í vítateignum.
Pedro Neto innsiglaði svo sigur Chelsea á 115. mínútu þegar tíu leikmenn Benfica voru byrjaðir að sækja meira í leit sinni að jöfnunarmarki. Kiernan Dewsbury-Hall kom einnig marki að eftir skyndisókn á lokamínútunum svo lokatölur urðu 4-1.
Niðurstaðan sanngjarn sigur Chelsea, sem lauk tæplega fimm klukkustundum eftir að hann hófst.
Athugasemdir