Arsenal keppir við Spurs um Eze - Liverpool ræðir um Guehi - Man Utd skoðar Warren Zaire-Emery
   fös 27. júní 2025 08:20
Jóhann Þór Hólmgrímsson
HM félagsliða framundan - Svona eru 16-liða úrslitin
Lionel Messi og félagar í Inter Miami mæta hans fyrrum félagi, PSG.
Lionel Messi og félagar í Inter Miami mæta hans fyrrum félagi, PSG.
Mynd: EPA
Riðlakeppninni á HM félagsliða er lokið en 16-liða úrslitin hefjast á morgun.

Tveir leikir fara fram á morgun. Það er brasilískur slagur þar sem Palmeiras og Botafogo mætast. Þá mætast Chelsea og Benfica.

Það er áhugaverður slagur á sunnudaginn þar sem PSG, sem vann Meistaradeildina í ár, mætir stjörnum prýddu liði Inter Miami.

Þá mætir brasilíska liðið Flamengo Bayern Munchen í síðasta leik helgarinnar.

Laugardagur 28. júní
16:00 Palmeiras - Botafogo
20:00 Benfica - Chelsea

Sunnudagur 29. júní
16:00 Paris Saint-Germain - Inter Miami
20:00 Flamengo - Bayern München

Mánudagur 30. júní
19:00 Inter - Fluminense

Þriðjudagur 1. júlí
01:00 Manchester City - Al Hilal (aðfaranótt þriðjudags)
19:00 Real Madrid - Juventus

Miðvikudagur 2. júlí
01:00 Borussia Dortmund - Monterrey (aðfaranótt miðvikudags)

Athugasemdir
banner