Al-Nassr vill fá Luis Díaz - Bayern ekki búið að gefast upp á Wirtz - Chelsea gæti keypt Sancho
   fim 29. maí 2025 15:22
Anton Freyr Jónsson
Kópavogsvelli
Byrjunarlið Breiðabliks og ÍA: Höskuldur tekur út leikbann - Óbreytt hjá ÍA
Viktor Karl Einarsson er fyrirliði Breiðablik í dag
Viktor Karl Einarsson er fyrirliði Breiðablik í dag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Viktor Elmar er í byrjunarliði Breiðabliks í dag
Viktor Elmar er í byrjunarliði Breiðabliks í dag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Núna klukkan  16:15 flautar Twana Khalid Ahmed til leiks á Kópavogsvelli þar sem Breiðablik og ÍA mætast í 9.umferð Bestu deildar karla. 

Bæði liðin töpuðu á útivöllum í síðustu umferð. Breiðablik fór í Kaplakrika og tapaði liðið 2-0 gegn FH. Skagamenn fóru í Víkina og töpuðu 2-1 gegn Víking Reykjavík.

Lestu um leikinn: Breiðablik 1 -  4 ÍA

Halldór Árnason þjálfari Breiðablik gerir fjórar breytingar á sínu liði frá tapainu gegn FH á Kaplakrikavelli. Viktor Karl Einarsson, Kristinn Steindórsson, Tobias Thomsen og Viktor Elmar Gautason koma allir inn í liðið. Anton Logi Lúðvíksson, Andri Rafn Yeoman og Ágúst Orri Þorsteinsson fá sér allir sæti á bekknum. Höskuldur Gunnlaugsson fyrirliði Breiðablik tekur út leikbann. 

Jón Þór Haukskson þjálfari ÍA sem verður í leikbanni í dag eftir að hafa fengið tvö gul spjöld í Víkinnii heldur liði sínu óbreyttu frá tapinu gegn Víking Reykjavík.


Byrjunarlið Breiðablik:
1. Anton Ari Einarsson (m)
4. Ásgeir Helgi Orrason
6. Arnór Gauti Jónsson
8. Viktor Karl Einarsson (f)
9. Óli Valur Ómarsson
10. Kristinn Steindórsson
17. Valgeir Valgeirsson
21. Viktor Örn Margeirsson
23. Kristófer Ingi Kristinsson
24. Viktor Elmar Gautason
77. Tobias Thomsen

Byrjunarlið ÍA:
1. Árni Marinó Einarsson (m)
4. Hlynur Sævar Jónsson
5. Baldvin Þór Berndsen
6. Oliver Stefánsson
7. Haukur Andri Haraldsson
9. Viktor Jónsson
13. Erik Tobias Sandberg
16. Rúnar Már S Sigurjónsson (f)
19. Marko Vardic
22. Ómar Björn Stefánsson
66. Jón Gísli Eyland Gíslason
Besta-deild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Víkingur R. 9 6 2 1 18 - 8 +10 20
2.    Vestri 9 5 1 3 11 - 5 +6 16
3.    Breiðablik 9 5 1 3 14 - 15 -1 16
4.    Valur 9 4 3 2 20 - 12 +8 15
5.    Stjarnan 9 4 1 4 16 - 17 -1 13
6.    Fram 9 4 0 5 15 - 15 0 12
7.    ÍBV 9 3 2 4 9 - 15 -6 11
8.    KA 9 3 2 4 9 - 16 -7 11
9.    KR 9 2 4 3 26 - 22 +4 10
10.    FH 9 3 1 5 15 - 14 +1 10
11.    Afturelding 9 3 1 5 8 - 13 -5 10
12.    ÍA 9 3 0 6 12 - 21 -9 9
Athugasemdir
banner