Man Utd ætlar að reka Ten Hag - Hver tekur við? - Tuchel hefur áhuga á starfinu
banner
   þri 31. desember 2019 11:38
Brynjar Ingi Erluson
Minamino má ekki spila gegn Sheffield United
Takumi Minamino
Takumi Minamino
Mynd: Twitter
Japanski leikmaðurinn Takumi Minamino verður ekki orðinn löglegur með enska úrvalsdeildarfélaginu Liverpool fyrir leikinn gegn Sheffield United á morgun.

Minamino samdi við Liverpool á dögunum eftir að hafa heillað með austurríska liðinu RB Salzburg en hann var keyptur fyrir 7,25 milljónir punda.

Hann gengur formlega til liðs við Liverpool á morgun en má þó ekki spila gegn Sheffield United á Anfield sem er einmitt sama dag.

Samkvæmt reglum ensku úrvalsdeildarinnar þá verður hann ekki löglegur í þessari umferð og getur því ekki spilað fyrsta leik sinn fyrir félagið fyrr en gegn Everton í FA-bikarnum á sunnudag.
Athugasemdir
banner
banner
banner