Þann 17. júní ætlar Fótbolti.net að endurvekja gamla hefð og finna bestu vítaskyttu landsins.
Keppnin hefst á slaginu 11:00 á Þróttaravelli í Laugardal - keppendur eru hvattir til að mæta korteri fyrir.
Stefnt er að því ljúka keppni um 13:00 leytið en keppt verður á þrjú mörk í einu bæði hjá fullorðnum og þeim yngri.
Skráning fer fram á staðnum og er bæði hægt að greiða með korti og reiðufé.
Þátttökugjaldið eru 1500 krónur og ekki er hægt að kaupa sig inn eftir klúðrað vítí á ný.
Mótið verður tvískipt en 5. flokkur og yngri (fæddir 2014 og yngri) keppa á minni mörk með markverði úr yngri flokka starfi Þróttara milli stangana.
Allir fæddir 2013 og eldri þurfa að skora hjá markvörðum úr efstu deildum landsins.
Fyrstu verðlaun í fullorðins keppni eru alvöru ferðapakki fyrir sumarið sem inniheldur meðal annars afnot af Teslu Model Y og hjólhýsi frá Leiguhýsi.is í viku í sumar.
Fyrstu verðlaun í yngri keppni er 55" QLED sjónvarp frá Tölvutek - Happatreyja fylgir öllum sjónvörpum í Tölvutek meðan HM stendur svo vinningshafi mun einnig fá kóða fyrir happatreyju. Tveir vinningar í einum pakka.
Allur ágóði af keppninni rennur til Ingvars Jónssonar markvarðar Víkinga og fjölskyldu.


