„Hann hefur dæmt mjög vel í sumar," sagði ég við Tómas Þór Þórðarson blaðamann á Morgunblaðinu, vin minn og kollega, á ónefndum leik um daginn.
„Er ekki hægt að segja það um alla dómara í Pepsi-deildinni nema kannski Þórodd Hjaltalín?" svaraði Tómas.
„Er ekki hægt að segja það um alla dómara í Pepsi-deildinni nema kannski Þórodd Hjaltalín?" svaraði Tómas.
Á sumri þar sem dómgæslan í Pepsi-deildinni hefur á heildina litið verið mjög góð, sú besta sem ég man eftir, fer það í hendurnar á þeim dómara sem hefur hreinlega átt slæmt sumar að dæma bikarúrslitaleikinn.
Eftir að sögur fóru á kreik um að Þóroddur ætti að dæma bikarúrslitaleikinn fóru margir að furða sig á því hvernig stæði á þessu vali. Að mínu mati gerir það engum gott að hann fái þetta verkefni.
Mér finnst Þóroddur Hjaltalín góður dómari, Klárlega. En það sama á við um hann eins og marga leikmenn í deildinni: Hann hefur átt slæmt sumar.
Hvaða skilaboð eru það til annarra dómara að hann fái bikarúrslitaleikinn? Á þetta ekki að vera gulrót fyrir dómara. Viðurkenning þess efnis að þú hafir dæmt vel. Valið á dómara í bikarúrslitaleiknum í ár og í fyrra er sönnun þess að svo sé ekki.
KR er í bikarúrslitum þriðja árið í röð. Þeir hafa unnið fyrir því. Er ekki hægt að hafa svipað kerfi hvað varðar dómara í stað þess að vinna eftir því markmiði að „allir" fái að dæma bikarúrslitaleik?
Erlendur Eiríksson var valinn besti dómara umferða 1-11 í fyrra, valinn besti dómari ársins 2011 og valinn besti dómari umferða 1-11 í ár. Hann „komst" í bikarúrslitin fyrir tveimur árum en virðist ekki eiga möguleika í ár. Þetta er bara dæmi, í raun eru margir dómarar sem áttu það skilið að fá þennan stórleik í ár.
Ég býst að sjálfsögðu við því að Þóroddur leysi verkefnið á laugardaginn vel, verkefni sem hann á samt ekki skilið að fá.
Athugasemdir