Marcus Rashford hefur samþykkt að ganga alfarið til liðs við Barcelona - Darwin Nunez eftirsóttur - Rodri er orðaður við Real Madrid
   þri 31. janúar 2017 15:09
Elvar Geir Magnússon
Landsliðshópurinn gegn Mexíkó - Tryggvi Hrafn valinn
Álasund og FH eiga flesta fulltrúa
Tryggvi Hrafn í leik með ÍA.
Tryggvi Hrafn í leik með ÍA.
Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir
Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari hefur valið þá leikmenn sem skipa hópinn sem mætir Mexíkó í vináttulandsleik í Las Vegas á miðvikudag í næstu viku.

Hópurinn ferðast út á sunnudaginn en í honum eru sjö leikmenn sem eiga engan A-landsleik. Ekki er um opinberan landsleikjadag að ræða og leika allir í hópnum í Skandinavíu, þar af sjö í Pepsi-deildinni hér á landi.

Þar á meðal er Tryggvi Hrafn Haraldsson en þessi tvítugi leikmaður ÍA skapaði sér nafn í Pepsi-deildinni í fyrra. Valið á honum kemur á óvart en hann hefur aldrei leikið fyrir yngri landslið Íslands.

Norska liðið Álasund og Íslandsmeistarar FH eiga flesta fulltrúa í hópnum eða þrjá hvort félag. Davíð Þór Viðarsson, fyrirliði FH-inga, er í hópnum en hann hefur leikið átta landsleiki. sá síðasti var vináttulandsleikur gegn Georgíu 2009.

Reyndastur í hópnum er Hall­grím­ur Jónas­son sem á fimmtán landsleiki.

Íslenska liðið tók þátt í vináttumóti í Kína í janúar. Fjórir leikmenn úr því verkefni eru í hópnum að þessu sinni.

Markverðir:
Ingvar Jónsson, Sandefjord
Frederik Schram, Roskilde*

Varnarmenn:
Hallgrímur Jónasson, Lyngby
Kristinn Jónsson, Sarpsborg 08
Böðvar Böðvarsson, FH
Orri Sigurður Ómarsson, Valur
Viðar Ari Jónsson, Fjölnir
Daníel Leó Grétarsson, Álasund*
Adam Örn Arnarson, Álasund*

Miðjumenn:
Davíð Þór Viðarsson, FH
Aron Sigurðarson, Tromsö
Kristinn Steindórsson, Sundsvall
Oliver Sigurjónsson, Breiðablik
Kristinn Freyr Sigurðsson, Sundsvall*
Tryggvi Hrafn Haraldsson, ÍA*

Sóknarmenn:
Aron Elís Þrándarson, Álasund
Kristján Flóki Finnbogason, FH*
Árni Vilhjálmsson, Jönkopings Södra*

*Þeir sjö leikmenn í hópnum sem eiga ekki A-landsleik að baki.

Fótbolti.net verður á leiknum í Las Vegas í næstu viku. Hann verður 2:30 aðfaranótt fimmtudagsins 9. febrúar að íslenskum tíma.
Athugasemdir
banner
banner