Marcus Rashford hefur samþykkt að ganga alfarið til liðs við Barcelona - Darwin Nunez eftirsóttur - Rodri er orðaður við Real Madrid
   þri 31. janúar 2017 15:28
Magnús Már Einarsson
Tryggvi Hrafn: Trúði þessu varla
Tryggvi Hrafn Haraldsson.
Tryggvi Hrafn Haraldsson.
Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir
„Heimir (Hallgrímsson, landsliðsþjálfari) hringdi í mig í hádeginu í dag og tilkynnti að hann ætlaði að taka mig með til Bandaríkjanna í næstu viku. Það kom mikið á óvart," sagði Tryggvi Hrafn Haraldsson við Fótbolta.net í dag.

Tryggvi er tvítugur sóknarmaður úr ÍA en hann er nýliði í íslenska landsliðshópnum sem mætir Mexíkó í vináttuleik í næstu viku. Tryggvi hefur ekki leikið með yngri landsliðum Íslands áður en hann er nú valinn í landsliðshópinn.

„Það var markmiðið að komast í U21 árs landsliðið fyrir næsta mót en þetta er skemmtilegt. Ég trúði þessu varla fyrst, maður var einhvern tíma að melta þetta. Það var markmiðið að komast einhverntímann í þennan hóp en maður bjóst ekki við því að það yrði svona snemma," sagði Tryggvi.

Var frá keppni í tvö ár
Tryggvi byrjaði síðasta tímabil á láni hjá Kára í 3. deildinni en hann var þá að koma til baka eftir erfið meiðsli. Hann fór aftur í ÍA í júní og skoraði eitt mark í sextán leikjum í Pepsi-deildinni síðari hluta sumars.

„Ég var meiddur meira og minna í hnjánum í tvö ár. Það voru brjóskskemmdir undir hnéskélinni báðu megin og ég fór samtals í fjórar aðgerðir. Ég kom frá Kára í fyrravor og fór óvænt beint í liðið. Ég spilaði síðan alla leikina eftir það."

Tryggvi hefur mest leikið í fremstu víglínu með ÍA en hann hefur þó einnig leikið á kantinum.

Faðir hans, Haraldur Ingólfsson, var öflugur kantmaður í margföldu Íslandsmeistaraliði ÍA á sínum tíma en hann spilaði einnig með íslenska landsliðinu. Tryggvi segist ekki vera með svipaðan leikstíl og faðir sinn. „Það er ekki mikið líkt með okkur. Hann var þessi gamli góði klassíski kantmaður sem krossaði endalaust. Mér finnst langskemmtilegast að spila frammi. Ég er með hraða og hleyp mikið," sagði Tryggvi að lokum.

Sjá einnig:
Smelltu hér til að sjá hópinn í heild
Athugasemdir
banner
banner
banner