Tottenham að vinna kapphlaupið um Robertson - Neymar til Bandaríkjanna? - Rogers eftirsóttur
Karólína Lea: Við erum betri en þurfum að sýna það
Badu: Ánægður að hafa unnið leikinn svona miðað við hvernig hann spilaðist
Hafrún Rakel: Við þurfum að sýna að við erum betra lið og klára leikinn
Brynjar Björn: Svekkjandi að tapa á svona marki
Óli Skúla: Það er vinna framundan
Sölvi Geir: Ég veit ekki hvaða rök það eru
Anton um mistökin: Gylfi sá sem maður hefði síst viljað senda á
Gylfi Sig: Í 99 skiptum af 100 fer þessi bolti langt yfir mig
Nýliðinn Linda Líf: Hann sendi á mig, ég svaraði, hann hringdi svo og lét mig vita
Sá skemmtilegasti spilar í Garðabæ - „Stjörnumenn megi alveg vera spenntir"
Yngsti aðalmarkvörðurinn í Bestu - „Erfiðir átta mánuðir"
Thelma Karen: Bjóst ekki við svona stóru hlutverki
Álitið - Hver verður skemmtilegastur í viðtölum?
Höskuldur hungraður: Ætlum að svara fyrir síðasta tímabil
Veit ekki hvort Blikarnir fari í rokk og ról
Óli Skúla: Erum með þrjá öfluga miðverði
Sveindís: Komið og horfið á okkur vinna Úkraínu
Fyrirliðinn á leið í sinn fyrsta leik í efstu deild - „Pressan kemur frá sjálfum mér"
Álitið - Hver er huggulegastur?
„Svíafíflið þitt“ - Gæðastjórinn heldur rígnum lifandi
   fös 18. júní 2010 23:48
Arnar Daði Arnarsson
Halldór Arnarsson: Við eigum Breiðholtið
Mynd: Fótbolti.net - Þórdís Inga Þórarinsdóttir
,,Þetta er meira en bara þrjú stig, við eigum Breiðholtið, það er ekki hægt að segja annað," sagði Halldór Arnarsson miðvörður ÍR eftir 2-1 sigur á Leikni í Breiðholtsslag í 1. deild karla í kvöld en þar með fór liðið uppfyrir Leikni og í toppsæti deildarinnar. ÍR komst snemma leiks í 2-0 en Leiknir minnkaði muninn í lokin.

,,Það skiptir eiginlega engu máli á hvaða mínútu maður skorar mörkin ef maður skorar fleiri mörk en andstæðingurinn. En það er fínt að koma sterkir til leiks, ég neita því ekki."

,,Við fáum á okkur skítamark í lokin sem var algjör óþarfi. Þeir fengu alveg sénsa til að minnka þetta fyrr en fyrst við vorum búnir að halda þessu í 88 mínútur fannst mér að við ættum að klára það."

ÍR er þar með komið í toppsæti deildarinnar eftir sjö umferðir. En hvernig er stemmningin í Breiðholtinu?

,,Hún er yndisleg, sérstaklega yndisleg því þið sérfræðingarnir ákváðuð að spá okkur falli fyrir mótið, sem kveikti bara í okkur. Ég vil nota tækfærið og þakka fyrirliðum og þjálfurum 1. deildar fyrir að spá okkur falli. Það var það sem kveikti í okkur í lokaundirbúningnum."

Halldór sneri sjálfur heim frá Danmörku fyrir mótið. Hann er ánægður með að vera kominn heim.

,,Það er yndislegt, best að vera á Íslandi. Ég vissi ekki hverju ég átti að búast við því ég hef ekki spilað í 1. deildinni áður. En hún er sterk og óvenju jöfn. Þessi lið sem áttu að vera í toppbaráttunni eru í basli. Þetta er kannski ár litlu liðanna, ég veit það ekki."

,,Ef við spilum eins og menn þá erum við greinilega búnir að sýna að við eigum heima í toppbaráttu. En við getum alveg lent í að spila lélega leiki, eins og við sýndum í síðustu viku þegar við spiluðum eins og hálfvitar á móti Fjölni."

Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Slapp
banner
banner