Kristján Valdimarsson, varnarmaður Fylkis, var nokkuð sáttur með frammistöðu liðsins þrátt fyrir 3-1 tap gegn Torpedo Zhodino.
,,Við misstum smá einbeitingu í lokin og þeir skora tvö frekar ódýr mörk. Heilt yfir vorum við fínir í þessum leik, við náðum að boltann ganga og börðumst. Þetta lið er kannski klassa fyrir ofan okkur," sagði Kristján við Fótbolta.net eftir leik.
,,Við reynum að halda á fram að berjast, þétta liðið og þora að láta boltann ganga. Við reynum að byggja ofan á þetta í Íslandsmótinu og við reynum að taka það jákvæða með okkur úr þessum leik."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.























