,,Auðvitað hugsa ég alltaf að mitt lið sé besta liðið, en við vitum allir að Valur á svaka mannskap. Ég held að með þessum sigri í kvöld, ég er ekki alveg viss, en Valur er búið að tryggja sér fyrsta sætið," sagði Dragan Stojanovic þjálfari Þór/KA eftir 3-0 tap gegn Val í kvöld.
,,Þetta lítur mjög illa út, 3-0 fyrir fólk sem sá ekki þennan leik í dag. Við vorum klárlega ekki verra liðið í dag. Við brenndum þrisvar úr dauðafærum einn gegn markmanni. Þetta er aftur og aftur okkar saga, við töpum leiknum og nýtum ekki okkar færi."
,,Ekki bara færi, þetta er eins og tvöfalt færi, einn á móti markmanni þrisvar. Ég var alveg viss um að hún myndi skora en maður leiksins var klárlega markmaður Vals í dag."
Nánar er rætt við Dragan í sjónvarpinu hér að ofan.






















