Everton reynir við Bowen - Arsenal og City vilja Hjulmand - Arsenal heldur áfram að reyna við Rogers
Uppbótartíminn - Þrjú lið á leið í titilbaráttu?
HM hringborðið - Stjörnurnar standa undir nafni
Harkið - Göngutúr í Garðinum
Innkastið - Dalur martraðanna
Útvarpsþátturinn - Keli í Dal draumanna og Freysi í Þrándheimi
HM hringborðið - Tíu menn og stytta
UTAN VALLAR: Yfirferð á ársreikningum - Fylkir í miklu brasi
Harkið - Bann í Búdapest
Innkastið - Eru ósigraðir Víkingar óstöðvandi?
HM hringborðið - Snyrtilegir Japanir og bitlausir Spánverjar
Uppbótartíminn - Nú stöndum við upp og klöppum
Útvarpsþátturinn - Þjálfaraskipti í Garðabæ og Einar Örn um HM
Harkið - Hjólari á Króknum
HM hringborðið - Línurnar lagðar fyrir komandi átök
Uppbótartíminn - Rúst í Laugardal, lið fá einkunnir og Sara komin heim
Harkið - Jón Daði mættur aftur!
Besta spjallið - Máni Péturs fer yfir stöðuna í Garðabæ
Útvarpsþátturinn - Arnór Ingvi og HM að hefjast
Harkið - Hiti í Vogunum
Uppbótartíminn - Allt var það eftir bókinni
   þri 26. október 2010 15:43
Magnús Már Einarsson
Brotist inn hjá Aroni Einari - Tóku allt sem var verðmætt
Aron Einar Gunnarsson, leikmaður Coventry, varð fyrir óskemmtilegri lífsreynslu í gærkvöldi þegar brotist var inn til hans. Valtýr Björn Valtýsson tók viðtal við Aron Einar í þættinum Mín Skoðun á X-inu 97,7 í dag.

,,Ég var ekki heima og síðan kem ég heim og lít inn í eldhús þá eru gluggatjöldin niðri. Þá hugsaði ég með mér 'nú hefur einhver farið í gegnum húsið mitt," sagði Aron Einar í þættinum.

,,Síðan skoðaði ég herbergið mit uppi og þá var Playstation tölvan farin, úrin öll, nokkrar símar sem ég átti, tölvan og allt. Þeir hafa dottið í feitan í gær. Þeir tóku allt sem var verðmætt í húsinu. Þetta er leiðinlegt en svona er þetta bíó."

Ræningjarnir skoðuðu einnig launaseðla Arons en miðjumaðurinn sterki segist þakka fyrir að hafa ekki verið heima þegar þeir létu til skarar skríða.

,,Ég er þakklátur fyrir að hafa ekki verið heima þegar þeir komu því þeir opnuðu gluggann með skrúfjárni og maður veit aldrei hvað getur gerst ef þeir eru í slæmu ástandi ræningjarnir. Þeir tóku þessa dauðu hluti en það er gott að ég var ekki heima og lenti ekki í veseni."

Aron Einar býst við að flytja eitthvert annað eftir þessa óskemmtilegu reynslu í gær.

,,Ég held ég komi mér í burtu héðan því þetta er mjög óþægilegt. Ég hugsa að ég borgi eitthvað eins meira til að komast í betra hverfi. Vonandi lendir maður ekki í þessu aftur," sagði Aron í viðtali í Mín Skoðun í dag.

Hér að ofan má hlusta á viðtalið við Aron í heild sinni.
Slapp
banner