Hlynur Svan stýrði Blikum til 4-0 sigurs á Aftureldingu í Pepsi-deildinni fyrr í kvöld. Með sigrinum klífa Blikar upp stigatöfluna og eru nú í 2. sæti á markatölu. Hlynur var auðvitað ánægður þegar Fótbolti.net náði tali af honum eftir leik.
„Þetta voru mjög góð stig sem við fengum hérna í kvöld. Mér fannst gaman að horfa á þennan leik. Það rættist úr veðrinu. Mér leist ekkert á blikuna að fara að spila í svona hávaða roki en svo var það bara allt í lagi. Auðvitað var völlurinn rennandi blautur og í fyrri hálfleik vorum við í smá vandræðum með touchið okkar. Boltinn var að spýtast svolítið frá okkur og annað. En við náðum að setja mark sem er mjög mikilvægt og það róaði okkar leik töluvert. Svo bættum við bara í í seinni hálfleik og náðum að nýta allan völlinn. Breiddina á honum og gerum þarna þrjú fín mörk þannig að þetta var mjög solid sigur.“
Eftir rólegan fyrri hálfleik lifnaði yfir Blikum í þeim síðari. Við spurðum Hlyn hvað hann hefði lagt upp með í hálfleik.
„Mér fannst eins og við værum ekki almennilega byrjaðar og við boltinn gekk of hægt á milli manna. Við vorum svona ekki alveg að fylgja planinu sem var til dæmis að halda breiddinni betur. Við gerðum þeim það aðeins auðvelt fyrir að verjast okkur en við löguðum það í seinni hálfleik. Svo fannst mér líka formið á liðunum koma í ljós. Síðustu 20 mínúturnar áttum við helling inni en þær voru á síðustu dropunum margar hverjar.“
Athyglis vakti að þrjú af fjórum mörkum Breiðablik voru skoruð með skalla. Hlynur segist vera með öfluga skallamenn í sínum röðum.
„Við erum reyndar búin að fara svolítið yfir hornin okkar og annað. Við erum með góða skallamenn í liðinu hjá okkur og það er bara mjög gaman að skora. Komu ekki tvö þarna eftir horn? Mér sýndist það. Við erum bara mjög ánægð með það.“
Leikmenn og stuðningsmenn Aftureldingar voru mjög ósáttir þegar Aldís Kara, einn markaskorara Blika, slapp með gult spjald eftir að hafa sparkað til leikmanns gestanna. Við spurðum Hlyn út í atvikið.
„Var þetta ekki svona appelsínugult? Ég held það. Þetta var nú ekki rautt en þetta var appelsínugult. Við leyfðum henni að byrja seinni hálfleikinn. Hún var búin að gera vel en við vorum ekkert að taka neina sénsa með hana. Við eigum leik eftir viku og við viljum hafa hana í liðinu hjá okkur,“ sagði Hlynur sem mætir stigalausu liði ÍA í næsta leik. Hægt er að horfa á viðtalið við Hlyn í sjónvarpinu hér að ofan.





















