Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19 - Fótbolti.net stendur vaktina
   mán 02. febrúar 2026 23:51
Brynjar Ingi Erluson
Ótrúlega vonsvikinn með frammistöðuna - „Átti ekki von á þessu"
Scott Parker
Scott Parker
Mynd: Burnley
Scott Parker, stjóri Burnley, var svekktur með frammistöðu sinna manna í 3-0 tapinu gegn Sunderland í ensku úrvalsdeildinni í kvöld og sagði hana hafa komið sér verulega á óvart.

Burnley hafði verið á ágætis róli í deildini. Liðið náði í jafntefli gegn Tottenham, Englandsmeisturum Liverpool og Manchester United í síðustu þremur leikjum en átti aldrei séns gegn Sunderland.

Hann segist vonsvikinn með frammistöðuna og var ekkert að skafa utan af hlutunum.

„Þetta eru þvílík vonbrigði. Við mættum á erfiðan útivöll sem við svo sem vissum fyrir leikinn. Í raun gáfum við sjálfum okkur aldrei tækifæri í þessum leik og þessir grunnþættir sem þarft að hafa í svona leikjum voru bara ekki til staðar."

„Þetta kom mér á óvart. Ég hef komið hingað nokkrum sinnum á þessu ári þar sem þeir hafa komið mér á óvart eftir góða frammistöðu en kannski er auðvelt að koma eftir leiki gegn Man Utd, Liverpool og Tottenham, en það vantaði verulega upp á í kvöld."

„Ég átti ekki von á þessari frammistöðu, alla vega ekki miðið við þá frammistöðu og úrslit sem við höfum verið að ná í. Við vorum langt frá því að vera samkeppnishæfir í þessari deild."

„Mér er slétt sama hvaða liði við erum að spila á móti. Ef þú ætlar að fara niður á þetta plan sem við fórum á þar sem vantaði ákefð í öllu sem við vorum að gera þá ertu tekinn í bakaríið. Við vorum allt of passífir á öllum sviðum,"
sagði Parker.

Burnley er í næst neðsta sæti deildarinnar með 15 stig, ellefu stigum frá öruggu sæti.
Athugasemdir
banner
banner