Man Utd íhugar að reyna við Mac Allister hjá Liverpool - Arsenal hefur áfram áhuga á Williams - Napoli vill ekki missa McTominay
   mán 02. febrúar 2026 18:34
Brynjar Ingi Erluson
Upamecano samþykkir nýjan samning hjá Bayern - Semur til 2030
Mynd: EPA
Franski miðvörðurinn Dayot Upamecano verður áfram í herbúðum Bayern München næstu árin eftir að hafa samþykkt að framlengja samning sinn við félagið.

Samningur Upamecano rennur út í sumar og hafa stærstu félög Evrópu verið í sambandi við umboðsmann hans varðandi að fá hann á frjálsri sölu.

Bæjarar vildu ólmir halda honum áfram og hafa verið í löngum og ströngum viðræðum við hann og umboðsmann hans.

Fabrizio Romano segir frá því í kvöld að Upamecano hafi nú loksins samþykkt að framlengja samning sinn og hin félögin sem voru í baráttunni eru nú meðvituð um stöðuna.

Samkvæmt Romano mun Upamecano skrifa undir fjögurra ára samning.

Upamecano er 27 ára gamall og verið á mála hjá Bayern frá 2021, en hann kom til félagsins frá RB Leipzig. Hann á 35 A-landsleiki og 2 mörk fyrir Frakka.


Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 22 18 3 1 82 19 +63 57
2 Dortmund 22 15 6 1 47 20 +27 51
3 Hoffenheim 22 14 3 5 47 28 +19 45
4 Stuttgart 22 13 3 6 41 29 +12 42
5 RB Leipzig 22 12 4 6 42 30 +12 40
6 Leverkusen 21 12 3 6 43 27 +16 39
7 Frankfurt 22 8 7 7 44 46 -2 31
8 Freiburg 22 8 6 8 32 36 -4 30
9 Hamburger 21 6 7 8 24 31 -7 25
10 Union Berlin 22 6 7 9 28 37 -9 25
11 Augsburg 22 7 4 11 25 39 -14 25
12 Köln 22 6 5 11 31 37 -6 23
13 Gladbach 22 5 7 10 25 37 -12 22
14 Mainz 22 5 6 11 25 37 -12 21
15 Wolfsburg 22 5 5 12 31 46 -15 20
16 Werder 22 4 7 11 22 42 -20 19
17 St. Pauli 22 4 5 13 20 39 -19 17
18 Heidenheim 22 3 4 15 19 48 -29 13
Athugasemdir
banner