Ugarte efstur á óskalista Newcastle - Skotmark Liverpool og Chelsea kostar 60 milljónir - West Ham og Tottenham vilja miðjumann Barcelona
Sterkastur í 1. umferð - Þetta var erfiður leikur maður
Sigurjón Rúnars: Tíu mínútna kafli sem við slökktum á okkur
Lárus Orri: Markús Páll og Viktor Jóns ná vel saman
Markús Páll: Alltaf gaman að skora, af hverju ekki að fagna?
Rúnar Kristins: Hafði ekki hugmynd um að Markús Páll væri á leiðinni til Íslands
Jökull: Það var bara óþarfi
Hetja Þórsara gegn Val: Búinn að bíða helvíti lengi eftir því að koma inn á
Haddi: Mjög svekkjandi það sem ég heyri
Siggi um ummæli Hemma: Hann má alveg halda það
Halli Gumm: Sex mínútur eftir - Þurfum að geta haldið þetta út
Hemmi eftir tap gegn Þór: Stjórnuðum leiknum frá A til Ö
Sextán ára hetja KR - „Er það ekki sem fólkið vill?“
Óskar Hrafn: Svona frammistaða í fyrra hefði skilað okkur 4-3 tapi
Diljá Ýr: Mörkin liggja í loftinu
Ingibjörg: Maður lærir ótrúlega mikið af þessum leikjum
Sandra María: Sallaróleg og veit að mörkin koma
Viggó ánægður að vera kominn aftur heim
Aleksandar Linta: Eigum séns gegn Val
Jói Kalli: Litlir í okkur í fyrri hálfleik
Hlín Eiríks: Það er ekki hægt að vinna fótboltaleik nema maður skori
banner
   fim 02. júní 2022 11:38
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Atli Barkar: Fínt fyrir mig núna að vera í U21
Icelandair
Atli á æfingu Íslands í dag.
Atli á æfingu Íslands í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Nei, það kemur mér ekkert þannig á óvart," sagði Atli Barkarson við Fótbolta.net í dag. Atli var í A-landsliðinu bæði í janúar og mars en er kominn aftur í íslenska U21 árs landsliðið. Liðið undirbýr sig fyrir þrjá leiki í undankeppni EM og er fyrsti leikurinn í verkefninu gegn Liechtenstein á morgun. Atli er leikmaður SönderjyskE í Danmörku.

„Ég var ekki að spila mikið núna seinni hlutann og fótbolti er bara svona. Það kom mér þannig séð á óvart þegar ég var síðast [í mars] í A-landsliðinu. Það var alveg skemmtilegt en U21 er líka bara fínt, gaman að spila leiki, vonandi þrjá leiki og það er bara fínt fyrir mig núna," sagði Atli.

Íslenska liðið á möguleika á því að komast á næsta stig keppninnar en liðið þarf að vinna alla sína leiki og treysta á að Grikkland misstígi sig.

„Ég geri það alveg, auðvitað þarf smá að detta með okkur. Mikilvægast er að fókusa á okkur, klára leikina þrjá og svo sjá til. Eina sem skiptir máli er að við klárum okkar. Það væri súrt ef það væri möguleiki og við klárum ekki okkar leiki."

Íslenska liðið æfir í Víkinni en Atli var leikmaður Víkings í tvö ár áður en hann fór í atvinnumennsku.

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum að ofan. Þar ræðir Atli um tímann hjá SönderjyskE.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Slapp
banner