Cesc Fabregas er sagður vera búinn að samþykkja tilboð Inter um að taka við þjálfun liðsins.
Þetta segir Santi Aouna, blaðamaður Foot Mercato.
Þetta segir Santi Aouna, blaðamaður Foot Mercato.
Stjórnendur Inter vilja ólmir halda Simone Inzaghi innan sinna raða en Fabrizio Romano er meðal fréttamanna sem greina frá því að Inzaghi sé að öllum líkindum að skipta yfir til Al-Hilal.
Fabregas er einn mest spennandi þjálfari Evrópu en hann hefur gert býsna góða hluti með Como á Ítalíu.
Það verður áhugavert að sjá hvað Fabregas gerir með Inter ef satt reynist.
Athugasemdir