Hvert fer Sancho? - Díaz orðaður frá Liverpool - City og Barca hafa áhuga á ungstirni Arenal - Elliott til Ítalíu og Sesko til Liverpool?
   mið 04. júní 2025 13:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Þjálfaði Ronaldo og tekur nú við starfi Milosar
Mynd: EPA
Portúgalinn Luis Castro, sem er 64 ára gamall, hefur verið ráðinn stjóri Al Wasl í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.

Hann tekur við starfinu af Milos Milojevic sem stígur til hliðar eftir tvö tímabil með liðið.

Ekki er orðið ljóst hvað Milos gerir næst á sínum ferli en hann náði nokkuð góðum árangri með liðið; varð tvöfaldur meistari í fyrra og valinn þjálfari ársins.

Castro er stýrði síðast liði Al Nassr í Sádi-Arabíu tímabilið 2023-24. Hann var á sínum tíma þjálfari Porto í heimalandinu og Shakhtar Donetsk í Úkraínu.
Athugasemdir
banner