Framtíð Alberts Guðmundssonar er í óvissu en á nýliðnu tímabili spilaði hann á láni með Fiorentina.
Fiorentina greiddi 8 milljónir evra til þess að fá Albert á láni frá Genoa og þarf félagið að greiða 20 milljónir evra í viðbótar til þess að fá Albert alfarið yfir.
Fiorentina greiddi 8 milljónir evra til þess að fá Albert á láni frá Genoa og þarf félagið að greiða 20 milljónir evra í viðbótar til þess að fá Albert alfarið yfir.
Fiorentina hefur ekki tekið ákvörðun með framtíð Alberts en Marco Ottolini, yfirmaður fótboltamála hjá Genoa, segir að það sé mikill áhugi á íslenska landsliðsmanninum.
„Það hefur verið áhugi frá félögum í Meistaradeildinni og við munum sjá hvað gerist," sagði Ottolini.
„Það er ekki útilokað að Albert komi hingað aftur. Við þurfum að finna bestu lausnina.
Athugasemdir