Hvert fer Sancho? - Díaz orðaður frá Liverpool - City og Barca hafa áhuga á ungstirni Arenal - Elliott til Ítalíu og Sesko til Liverpool?
   mið 04. júní 2025 11:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Pepe Reina í sitt fyrsta starf eftir að hanskarnir fóru á hilluna
Pepe Reina tekur til starfa hjá Villarreal.
Pepe Reina tekur til starfa hjá Villarreal.
Mynd: EPA
Fyrrum markvörðurinn Pepe Reina hefur hafið þjálfaraferil sinn en hann er tekinn við U19 liði Villarreal.

Reina, sem er 42 ára gamall, átti flottan feril sem markvörður þar sem hann var líklega þekktastur fyrir tíma sinn hjá Liverpool. Þar spilaði hann frá 2005 til 2014.

Reina spilaði einnig fyrir Barcelona, Villarreal, Napoli, Bayern München, AC Milan, Aston Villa, Lazio og Como á sínum ferli.

Hann lék tvisvar fyrir Villarreal á ferli sínum og er kominn aftur þangað núna, en í þetta skiptið sem þjálfari. Í tilkynningu Villarreal er talað um að hann sé kominn heim og það verði spennandi að sjá hann takast á við nýja áskorun.
Athugasemdir
banner