Arsenal hefur staðfest að félagið sé í viðræðum við Thomas Partey um framlengingu á samningi hans, en núgildandi samningur rennur út í lok mánaðar. Arsenal kom í dag með uppfærslu á stöðu samningslausra leikmanna.
Raheem Sterling og markvörðurinn Neto fara þá til sinna félaga en þeir voru á láni hjá Arsenal í vetur. Sterling kom frá Chelsea og Neto frá Bournemouth.
Raheem Sterling og markvörðurinn Neto fara þá til sinna félaga en þeir voru á láni hjá Arsenal í vetur. Sterling kom frá Chelsea og Neto frá Bournemouth.
Kieran Tierney, eins og hefur verið fjallað um, yfirgefur Arsenal á frjálsri sölu og semur við Celtic.
Partey er 31 árs miðjumaður sem hefur verið orðaður við Juventus, Atletico Madrid, Sádi-Arabíu og Barcelona síðustu vikur.
Athugasemdir