Hvert fer Sancho? - Díaz orðaður frá Liverpool - City og Barca hafa áhuga á ungstirni Arenal - Elliott til Ítalíu og Sesko til Liverpool?
   mið 04. júní 2025 15:33
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Freysi: Í tvígang verið mjög nálægt því að fara til Englands
Freyr Alexandersson, þjálfari Brann.
Freyr Alexandersson, þjálfari Brann.
Mynd: Kortrijk
Freyr Alexandersson er að koma sér vel fyrir í Bergen þar sem hann er að þjálfa Brann, eitt stærsta félag Skandinavíu. Liðið er sem stendur í öðru sæti norsku úrvalsdeildarinnar.

Áður en Freysi fór til Noregs, þá starfaði hann hjá Kortrijk í Belgíu þar sem þjálfarahringekjan er mikil.

„Ég ákvað það eftir Kortrijk að... ég hefði alveg getað unnið áfram í Belgíu, en ég ætla ekki að vinna aftur þar fyrr en stelpurnar mínar tvær eru komnar í háskóla og geta bjargað sér sjálfar," sagði Freysi í hlaðvarpi hér á Fótbolta.net á dögunum.

Hann hefur talað um það áður að enski boltinn heilli sig mikið. Er það samt ekki bara eftir nokkur ár?

„Fótboltaheimurinn er svo bilaður að maður veit aldrei. Það var rosalega heitur draumur hjá mér og ég er búinn að vera mjög nálægt því í tvígang. Ég er ekki að flýta mér en ég ætla þangað einhvern tímann," sagði Freyr.

„Þegar rétta félagið og rétta augnablikið er, þá langar mig að upplifa það. En þessi bransi er enginn dans á rósum. Núna ætla ég bara að vera hérna og njóta þess í botn. Þetta hefur allt sem mig langar í og ég elska að vera hérna."

Hann vildi ekki gefa upp hvaða félögum hann var nálægt því að taka við en gera má ráð fyrir því að annað þeirra sé Cardiff, félag sem hann hefur verið orðaður við. Freysi ætlar þó að byrja á því að gera góða hluti í Bergen, sem hann er nú þegar að gera.

Hægt er að hlusta á viðtalið hér fyrir neðan og á öllum hlaðvarpsveitum.
Freysi á heimavelli - Hvernig er líf íslenska þjálfarans í Bergen?
Athugasemdir
banner