Man Utd gæti keypt Kalulu - Iraola gerir tveggja ára samning við Liverpool - Villa vill ekki missa Rogers
banner
   mið 03. júní 2026 12:43
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Áfall fyrir Stjörnuna - „Mun pottþétt spila aftur í sumar ef ég þekki hana rétt"
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Murielle Tiernan, leikmaður Stjörnunnar, hefur ekki verið í leikmannahópi liðsins í síðustu fjórum leikjum vegna meiðsla.

Hún er ökklabrotin, en þetta staðfesti Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar, eftir sigur liðsins gegn ÍBV.

Bandaríski framherjinn, sem kom frá Fram í vetur, hafði byrjað fyrstu þrjá leikina í Bestu deildinni. Hún var í hlífðarskó á Samsungvellinum á laugardag.

Lestu um leikinn: Stjarnan 2 -  0 ÍBV

„Ég veit ekki hvað hún verður lengi frá. Hún er ökklabrotin, ofboðslega óheppin. Ég get ekki sagt til um hversu lengi hún verður frá. Þetta er leiðinlegt fyrir hana og leiðinlegt fyrir okkur. En við eigum fullt af leikmönnum og leysum þau skakkaföll sem verða. Ég eiginlega geta lofað því að hún mun pottþétt spila aftur í sumar ef ég þekki hana rétt," sagði Óskar sem þjálfaði Murielle bæði hjá Fram og Tindastóli.

Samkvæmt KSÍ hefur Murielle (1994) skorað 151 mark í 185 leikjum hér á landi.


Óskar Smári eftir sigurinn: „Ætli ég fari ekki bara til Tenerife í tvær vikur“
Besta kvenna
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Breiðablik 7 6 0 1 21 - 8 +13 18
2.    FH 7 5 1 1 18 - 9 +9 16
3.    ÍBV 7 4 1 2 13 - 13 0 13
4.    Þróttur R. 7 4 0 3 11 - 7 +4 12
5.    Stjarnan 7 3 2 2 10 - 7 +3 11
6.    Víkingur R. 7 3 0 4 14 - 17 -3 9
7.    Grindavík/Njarðvík 7 2 2 3 8 - 13 -5 8
8.    Valur 7 2 1 4 7 - 10 -3 7
9.    Fram 7 1 1 5 8 - 18 -10 4
10.    Þór/KA 7 0 2 5 11 - 19 -8 2
Slapp
banner