Man Utd gæti keypt Kalulu - Iraola gerir tveggja ára samning við Liverpool - Villa vill ekki missa Rogers
   mið 03. júní 2026 10:10
Kári Snorrason
Skilur ekki hvers vegna Valur leyfði Mattíasi Kjeld að fara - „Er þetta ekki stefnan?“
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Hinn sextán ára Mattías Kjeld hefur farið frábærlega af stað með Gróttu í Lengjudeildinni í sumar. Sóknarmaðurinn efnilegi hefur skorað þrjú mörk í fyrstu sex leikjum liðsins.

Mattías gekk til liðs við Gróttu í vetur eftir að samningur hans við uppeldisfélagið Val rann út. Hann spilaði einn leik með Hlíðarendafélaginu í Bestu deildinni á síðasta tímabili.

Þá hefur verið mikið rætt um nýja stefnu Vals, þar sem lagt er upp með að yngri leikmenn fái tækifæri. Gunnlaugur Jónsson, fyrrum þjálfari Vals, furðaði sig á því hvers vegna hann fékk að fara frá félaginu í vetur í Innkastinu á sunnudag.

„Er þetta ekki nákvæmlega það sem Valur er að stefna að? Hvers vegna er hann ekki á samningi og er síðan lánaður? Þetta er stórfurðulegt,“ sagði Gunnlaugur.

Sá ekki fram á mínútur hjá Val
Í viðtali við Fótbolta.net á dögunum sagði Mattías sjálfur að Valur gæti ekki lofað sér mínútum.

„Hérna var tækifæri til að fá að spila fótbolta, eins og ég er að gera núna, byrja alla leiki og standa mig. Valur gat ekki lofað mér mínútum og Grótta gat leyft mér að spila.“

„Ég var ekki samningsbundinn við Val, þannig að ég fór á fund með Gróttu um að fara á lán, mig langaði að fara á lán. En Grótta sagði við mig að þeir vildu ekki fá lánsleikmenn og mér leist vel á Gróttu og Rúnar og alla. Ég stökk á þetta og skrifaði undir tveggja ára samning,“ sagði Mattías.
Innkastið - Farið yfir geggjaða umferð með Gulla Jóns
Slapp
banner
banner
banner
banner