Man City nálægt því að krækja í Anderson - Liverpool vill Diomande til að fylla skarð Salah
Sædís Rún: Auðvitað langar manni að spila á hærra leveli
María um fyrsta landsleikinn: Sérstaklega gaman að fá að spila á móti heimsmeisturunum
Cecilía Rán: Fannst við standa okkur ótrúlega vel
Óvænt í byrjunarliði Íslands - „Svo mikill heiður"
Steini Halldórs: Samkvæmt reglum á að stoppa leikinn
Jói Bjarna: Auðvitað finnst mér þetta erfitt og skrítið
Glódís Perla: Ef við viljum vera áfram í hæsta gæðaflokki þá verðum við að setja fjármagn í þetta
Guðrún: Komið alveg hálft ár síðan við hittumst síðast
Steini landsliðsþjálfari: Trú og hugrekki gegn heimsmeisturunum
Hlín Eiríks: Við leikmenn hefðum viljað hafa verkefni í síðasta glugga
Birta Georgs: Fannst ég ekki geta hafnað því
Elín Helena: Ein heima að gera mig til fyrir fimmtugsafmæli
Sveindís Jane: Erum ekki að fara vinna þær í því og það er í lagi
Sölvi: Við gerðum okkar og nú vonar maður að þeir geri sitt
Venni: Ef þetta eru lög þá þarf að óska eftir lagabreytingu
Benoný Breki: Ég þarf að halda áfram að vera jákvæður
„Það er ekkert lið á Íslandi svona gott"
„Ég skoraði nokkur svona á hana á Hlíðarenda"
„Mér finnst rauður fara henni betur"
Séra Davíð Þór fer yfir viðburðaríka mánuði í Skírisskógi - „Stórhættulegur brandari“
   þri 04. mars 2014 21:00
Elvar Geir Magnússon
Kolbeinn: Ekkert sparað á morgun
Elvar Geir Magnússon skrifar frá Cardiff
Kolbeinn vill ná góðum sigri á morgun.
Kolbeinn vill ná góðum sigri á morgun.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það hefur farið vel um íslenska landsliðið í Wales þar sem það mætir heimamönnum í vináttuleik á morgun. Okkar menn gista á Vale Resort sem er hótel sérhannað fyrir íþróttafólk.

Sóknarmaðurinn Kolbeinn Sigþórsson veitti Fótbolta.net viðtal í dag og má sjá það í spilaranum hér að ofan.

„Við þurfum að skoða hvað hefur vantað í síðustu leikjum og rífa okkur upp eftir svekkelsið gegn Króatíu. Við ætlum að einbeita okkur að okkar leik og bæta það sem þarf að bæta. Við viljum ná góðum sigri á morgun," segir Kolbeinn.

„Menn vilja spila almennilegan leik hérna. Það eru margir leikmenn sem hafa lítið fengið að spila og vilja koma sér í form og sýna sig og sanna. Ég held að það verði ekkert sparað á morgun."

Kolbeinn hefur vermt varamannabekkinn hjá Ajax meira að undanförnu en hann hefði viljað.

„Ég er í fínu formi. Ég hef náð að skora mikilvæg mörk á tímabilinu og vonandi get ég bætt ofan á það. Við erum með átta stiga forystu í Hollandi og ef við náum að halda einbeitingu verðum við meistarar fjórða árið í röð."
Athugasemdir
banner